Fara í efni  

VST1036 - Vélstjórn

Áfangalýsing:

Bulluvélin, sögulegt yfirlit (Lenoir, Otto, Diesel). Áhrif vélvæðingar í sjávarútvegi og siglingum. Flokkun aflvéla. Grundvallarhugmyndir að baki bulluvélinni og munur á aðstreymi eldsneytis og lofts í ottóvél og dísilvél. Vinnuhringur bulluvéla, bæði tvígengis- og fjórgengis- og helstu mæligildi. Bygging bulluvélar, helstu hlutar hennar og efni. Eldsneytisolíukerfi, einstakir þættir þess. Prófun eldsneytistækja, rekstur og viðhald. Blöndun eldsneytis og lofts. Snúningshraðastilling véla. Dælur, vinnumáti og bygging. Skolunarkerfi fjór- og tvígengis-dísilvéla. Smurolían, smurolíukerfi og einstakir þættir þess. Smuraðferðir, rekstur og viðhald smurkerfa. Ræsing bulluvéla og ræsiloftskerfi. Í verklegum tímum er áhersla lögð á umhirðu búnaðar í vélarúmi. Undirbúningur undir gangsetningu, keyrsla, stöðvun og frágangur dísilvéla.

Til baka

Getum við bætt efni síðunnar?

VERKMENNTASKÓLINN Á AKUREYRI

Skrifstofa VMA er opin mánudaga til fimmtudaga frá kl. 08:15-12:10 og frá 12:30-15:00. Á föstudögum er opið frá kl 08:15-13:00.