DANS1HT01 - Danska með áherslu á tjáningu
hlustun, tjáning og framburður
			Einingafjöldi: 1
Þrep: 1
								
	Þrep: 1
		Unnið verður með talmál dönskunnar þar sem tjáningin er höfð að leiðarljósi. Áhersla verður á að efla þekkingu, leikni og hæfni nemenda í notkun þeirra tjáskiptaleiða sem henta hverjum og einum. Hlustun, umræður, hugtakaskilningur og lestur verður nálgunin í áfanganum og notast verður við bókmenntir, kvikmyndir, tímarit og veraldarvefinn með fjölbreyttum verkefnum til að byggja ofan á þá þekkingu sem fyrir er.	
			Þekkingarviðmið
- algengum orðum, orðasamböndum og stuttum setningum
 - einföldum leiðbeiningum og upplýsingum á danskri tungu
 - að tjá sig um afmörkuð efni
 - framburði í dönsku máli
 
Leikniviðmið
- heilsa, kynna sig, þakka fyrir sig og afsaka sig með viðeigandi orðalagi
 - tjá sig fyrir framan nemendahópinn á sinn hátt
 - mynda einfaldar setningar
 - greina heiti og einstök orð, þegar talað er á danskri tungu
 - skilja aðalatriði í einföldum samtölum, taka þátt í umræðum og tjá eigin skoðanir
 
Hæfnisviðmið
- heilsa, kynna sig, þakka fyrir sig og afsaka sig með viðeigandi orðalagi
 - tjá skoðanir sínar og tilfinningar á danskri tungu
 - segja frá efni sem fjallað hefur verið um í stuttu máli
 - líkja eftir framburði á algengum orðum, orðasamböndum og stuttum setningum
 - tjá sig um þau orð og orðasambönd, t.d. sem hann hefur lært
 - mynda og svara einföldum spurningum út frá orðaforða sem tengist viðfangsefninu
 - vinna samtalsæfingar út frá fyrirmyndum sem fengist hefur verið við