Fara í efni

Canvas

Canvas er alhliða námsvefur sem auðveldar samskipti kennara og nemenda og gefur greiðar boðleiðir og upplýsingar um allt sem tengist náminu. Nemendur geta sótt allt það efni sem kennarar miðla til nemenda inni á sama svæði.

Á forsíðu sjá nemendur yfirlit yfir áfanga sem þeir eru skráðir í, næstu verkefni, kennslustundir sem eru á döfinni og nýbirtar einkunnir. Inni í hverjum áfanga birtist yfirlit yfir verkefni, umræðuþræði áfanga, kennsluáætlun, fyrirlestra og fleira. Nemandi getur valið einstaka verkefni og sent inn lausn. Nemendur geta einnig skráð sig saman í hópa og átt í umræðum innan hópsins og skilað verkefnum saman.

Canvas app

Byrjaðu á því að leita að Canvas Student í App Store (iOS) eða Play Store (Android) og setja upp forritið (e. Install)

Skjáborð / Dashboard

Þetta svæði opnast fyrst þegar þú skráir þig inn á kerfið í vefvafra.

Hægt er að stilla skjáborðið a með því að smella á punktana:

Námskeiðakort (Course Cards): Hver áfangi er með sitt eigið kort. Þú getur breytt litunum á kortunum eða raðað þeim eins og þér hentar.

Gera-listinn (To-Do List): Hægra megin (eða neðst í appinu) sérðu lista yfir næstu verkefni og próf raðað eftir skiladögum.

Upphafssíða námskeiðs

Byrjaðu á því að smella á Námskeið (1) og smelltu á nafnið á námskeiðinu (2).

Þegar þú ert kominn inn í þitt námskeið getur þú valið að sjá námsefni, kennsluáætlun, tilkynningar frá kennara og einkunnir.

Hvernig skila ég verkefnum

  Smellti á áfangan þinn og veldur verkefni. Þar sérðu öll verkefni sem eru opin. 

Næst velur þú verkefnið sem þú vilt skila

 

Þegar þú ert búin að bæta við réttri skrá smellir þú á skila

 

 

Til að sjá námsefni

Til þess að sjá námsefni áfangans er áfangin valin og námsefni þá kemur upp allt námsefni sem kennarin er búin að birta

Getum við bætt efni síðunnar?