Innra og ytra mat á skólastarfi
Mat á skólastarfi er liður í lögbundnu eftirlitsstarfi skóla og skólayfirvalda sem hefur þann tilgang að tryggja réttindi nemenda og stuðla að skólaumbótum. Markmið mats
og eftirlits er einkum þríþætt.
Í fyrsta lagi að fylgjast með að starfsemi skóla sé í samræmi við ákvæði laga, reglugerða og aðalnámskráa.
Í öðru lagi að auka gæði skólastarfsins og stuðla að umbótum, tryggja að réttindi nemenda séu virt og að þeir fái þjónustu sem þeir eiga rétt á samkvæmt lögum.
Í þriðja lagi að veita upplýsingar um skólastarfið. Mikilvægt er að innra og ytra mat á skólanum nái til allra lögbundinna markmiða skólastarfsins, þ.m.t. hlutverks skólans til að styrkja nemendur til þátttöku í lýðræðisþjóðfélagi, efla frumkvæði og sjálfstæða hugsun nemenda, samskiptahæfni og fleiri atriði sem m.a. tengjast grunnþáttum menntunar.
Innra mat skólans er fléttað saman við daglegt starf og nær til allra þátta skólastarfsins, s.s. stjórnunar, kennslu, námskrafna, námsmats og samskipta innan og utan kennslustofunnar. Verkmenntaskólinn á Akureyri vinnur eftir gæðastaðlinum ÍSO- 9001. Gerðar eru ýmsar úttektir á starfsemi skólans eins og lýst er í gæðahandbók skólans. Áætlun um innra mat er sett fram til tveggja ára í senn á GÁT-028.
Áfanga- og kennslumat
þar meta nemendur kennslu, aðstöðu og námsefnið í þeim áföngum sem þeir eru skráðir í, hver áfangi fer í mat á þriggja anna fresti. Farið er yfir niðurstöður einstaka kennara í starfsmannaviðtölum en heildaniðurstöður eru birtar á heimasíðu.
Kennslukannanir
Samkvæmt 40. og 41. gr. laga um framhaldsskóla frá árinu 2008 skal hver framhaldsskóli meta kennslu og gæði skólastarfsins með kerfisbundnum hætti. Mennta- ogmenningarmálaráðuneytið lætur síðan gera úttekt á sjálfsmatsaðferðum skóla á fimm ára fresti.
Verkmenntaskólinn á Akureyri gerir áfanga- og kennslumat á meðal nemenda skólans á hverri önn samkvæmt verklagi í gæðahandbók VMA (sjá VKL 402). Aðrar úttektir á námi og kennslu eru gerðar á hverri önn eins og lýst er í sjálfsmatsáætlun hvers skólaárs t.d. áfangaskýrslur, framvindumat og ýmsar samantektir á árangri nemenda. Annað hvert ár er gerð þjónustukönnun á meðal nemenda þar sem spurt er um ýmsa aðra þætti en kennslu og nám í einstaka áföngum. Niðurstöður þessara kannanna eru notaðar til að mæla gæðamarkmið skólans er lúta að kennslu áfanga og líðan nemenda.
Tilgangur áfanga- og kennslumats er að kanna hvernig til hafi tekist í áfanganum og í skólastarfinu með það að markmiði að bæta það sem betur má fara. Allir kennarar fá eigin niðurstöður birtar í gegnum Innu og eru niðurstöður hvers kennara ræddar í starfsmannaviðtali. Þá fer gæðaráð skólans yfir heildarniðurstöður hverrar annar.
Niðurstöður kennslu- og áfangamats haustönn 2025
Niðurstöður kennslu- og áfangamats vorönn 2025
Niðurstöður kennslu- og áfangamats haustönn 2024
Niðurstöður kennslu- og áfangamats vorönn 2024
Niðurstöður kennslu- og áfangamats haustönn 2023
Niðurstöður kennslu- og áfangamats vorönn 2023
Niðurstöður kennslu- og áfangamats haustönn 2022
Niðurstöður kennslu- og áfangamats vorönn 2022
Niðurstöður kennslu- og áfangamats haustönn 2021
Niðurstöður kennslu- og áfangamats vorönn 2021
Niðurstöður kennslukönnunar vorönn 2020
Eldra kennslu og áfangamat
Niðurstöður kennslukönnunar haustönn 2019
Niðurstöður kennslukönnunar vorönn 2019
Niðurstöður kennslukönnunar haustönn 2018
Niðurstöður kennslukönnunar vorönn 2018
Niðurstöður kennslukönnunar haustönn 2017
Niðurstöður kennslukönnunar vorönn 2017
Niðurstöður kennslukönnunar haustönn 2016
Niðurstöður kennslukönnunar vorönn 2016
Niðurstöður kennslukönnunar haustönn 2015
Kennslu- og áfangamat vorönn 2015
Kennslu- og áfangamat haustönn 2014
Könnun í NSK haustið 2014
Kennslu- og áfangamat vorönn 2014
Fjarnám
Niðurstöður kennslukönnunar haust 2015
Niðurstöður kennslukönnunar vor 2012
Framvindumat
Þar meta kennarar hvernig kennslan gengur í hverjum áfanga og hvort þeir séu að fylgja þeirri kennsluáætlun sem lagt var upp með.
Áfangaskýrsla
Í lok annar er skoðaður árangur nemenda, hvernig áfanginn gekk og hvað má gera betur. Jafnframt kemur þarna fram hvort einhverju var ábótavant í kennslunni. Þetta mat fer fram á hverri önn.
Þjónustukönnun
Þar er lagt upp með að meta ýmsa þjónustu sem skólinn veitir nemendum. Þar hefur t.d. verið skoðað hvernig nemendum líður í skólanum, hvernig þeir líta á þjónustu á bókasafni, skrifstofu, mötuneyti, námsráðgjafa o.s.frv. Þjónustukönnun er gerð á tveggja ára fresti.
Vinnustaðar- og stjórnendamat
Þar eru starfsmenn skólans spurðir um VMA sem vinnustað, spurt um líðan, ýmislegt er snýr að skólastarfin og viðhorf gagnvart stjórnun skólans. Þessar kannanir eru gerðar á tveggja ára fresti.
Innri úttektir
Þar eru allar verklagsreglur gæðakerfisins teknar út og skoðaðar. Í þessum úttektum er skoðað hvort kennarar, stjórnendur, nemendur og aðrir starfsmenn skólans séu að vinna eftir gæðakerfi hans. Innri úttektir fara fram á hverju skólaári.
Ytri úttekt
Þar kemur úttektarmaður til að taka út starfsemi skólans. Úttektarmaður skoðar hvort unnið sé eftir kröfum í gæðakerfi skólans og hvort starfsemin uppfylli þær kröfur sem þarf til að viðhalda vottun á náminu út frá ISO-9001 gæðastöðlum. Þessar úttektir eru gerðar á hverri önn.
Skýrslur um innramat
í lögum um framhaldsskóla nr. 92/2008 er m.a. kveðið á um hvernig innra mati skuli háttað í framhaldsskólum landsins. Markmið mats og eftirlits með gæðum starfs í framhaldsskólum er m.a. að veita upplýsingar um skólastarfið, árangur þess og þróun. Einnig er markmiðið að tryggja að starfsemi skólans sé í samræmi við ákvæði laga, reglugerða og aðalnámskrár framhaldsskóla, að auka gæði náms og skólastarfs og stuðla að umbótum. Jafnframt að tryggja að réttindi nemenda séu virt og að þeir fái þá þjónustu sem þeir eiga rétt á samkvæmt lögum (40. gr.). Kveðið er á um að hver framhaldsskóli meti með kerfisbundnum hætti árangur og gæði skólastarfs á grundvelli 40. gr. með virkri þátttöku starfsmanna, nemenda og foreldra eftir því sem við á og birti opinberlega upplýsingar um innra mat sitt, tengsl þess við skólanámskrá og áætlanir um umbætur (41. gr.).
Skýrslu um innra mat í VMA er skilað til Mennta- og menningamálaráðuneytis að hausti fyrir skólaárið á undan. Skýrslan er samantekt að mestu úr gögnum úr rýni stjórnenda og gæðaskýrslum.
Skýrsla um innra mat í VMA skólaárið 2024-2025
Skýrsla um innra mat í VMA skólaárið 2023-2024
Skýrsla um innra mat í VMA skólaárið 2022-2023
Skýrsla um innra mat í VMA skólaárið 2021-2022
Skýrsla um innra mat í VMA skólaárið 2020-2021
Skýrsla um innra mat í VMA skólaárið 2019-2020
Skýrsla um innra mat í VMA skólaárið 2018-2019
Skýrsla um innra mat í VMA skólaárið 2017-2018
Skýrsla um innra mat í VMA skólaárið 2016-2017