Rafvirkjun - kvöldnám
Það er innritað í kvöldskóla í rafvirkjun annað hvert ár. Stefnt er á að byrja 1.önn vorönn 2027
Rafvirkjun fyrir vélstjóra í kvöldskóla, næst er tekið inn í rafvirkjun fyrir vélstjóra vorönn 2026 og er námið tvær annir (sjá neðar).
Brautarlýsing
Miðað er við að nemandi hafi náð 22 ára aldri og/eða hafi viðeigandi starfsreynslu. Nemendur sem eru að vinna í faginu ganga fyrir í inntöku. Nemendur sem hafa undirgengist raunfærnimat fá viðkomandi áfanga metna. Ef fleiri sækja um nám á brautinni en skólinn getur tekið við getur inntökuviðmið orðið hærra en lágmarkið.
Nemendur með annað móðurmál en íslensku þurfa að hafa lokið námsefni í íslensku sem nemur B1 samkvæmt evrópska tungumálarammanum við innritun á brautina.
Athugið að auk ofangreindra áfanga þurfa nemendur að ljúka ÍSLE2HS05, ENSK2LS05, STÆF2RH05, STÆF2AM05 og SKYN2EÁ01 til að uppfylla kröfu brautarinnar. Almennar greinar, þurfa nemendur að taka í dagskóla, fjarnámi eða hjá símenntunarmiðstöðvum en æskilegt er að almennum greinum sé að mestu lokið.
Kennslufyrirkomulag / Námsframvinda
Miðað verður við kennslu faggreina þrjá til fjóra daga í viku mánudaga til fimmtudaga eftir klukkan 16:00. Almennar greinar, t.d. íslensku og stærðfræði, þurfa nemendur að taka í dagskóla, fjarnámi eða hjá símenntunarmiðstöðvum en æskilegt er að almennum greinum sé að mestu lokið.
Námið er fjórar annir í skóla. Til viðbótar við skólatímann kemur áskilinn samningur hjá meistara þar sem nemendur vinna að verkþáttum skv. rafrænni ferilbók
Til að ljúka námi í rafvirkjun þarf að ljúka öllum hlutum náms, þ.m.t. vinnustaðanámi/starfsþjálfun sem staðfest er með lokum á rafrænni ferilbók. Eftir útskrift getur nemandinn þreytt sveinspróf.
Annarplan (vor25-haust25-vor26-haust26)
Kvöldskóli í Rafvirkjun |
Vorönn 2025 1.önn |
Haustönn 2025 2.önn |
Vorönn 2026 3.önn |
Haustönn 2026 4.önn |
Greinar |
Grunndeild |
Grunndeild |
Rafvirkjun |
Rafvirkjun |
|
Verktækni grunnnáms |
|
|
||
|
Stýringar og rökrásir |
|
|||
|
Raflagnir |
||||
|
Rafmagnsfræði |
||||
|
Mekatronik |
|
|
||
|
Rafeindatækni |
|
|
|
|
|
Smáspennuvirki |
||||
|
Forritanleg raflagnakerfi |
|
|||
|
Lýsingartækni |
|
|||
|
Raflagnastaðall |
||||
|
Raflagnateikning |
||||
|
Rafvélar |
Athugið að auk ofangreindra áfanga þurfa nemendur að ljúka ÍSLE2HS05, ENSK2LS05, STÆF2RH05, STÆF2AM05 og SKYN2EÁ01 til að uppfylla kröfu brautarinnar. Almennar greinar þurfa nemendur að taka í dagskóla, fjarnámi eða hjá símenntunarmiðstöðvum en æskilegt er að almennum greinum sé að mestu lokið við upphaf kvöldskóla.
Rafvirkjun fyrir vélstjóra - kvöldskóli
|
5. önn í kvöldskóla |
6. önn í kvöldskóla |
Nánari upplýsingar um námið veitir sviðsstjóri starfsnáms.
Síða uppfærð 25.09.2024 (ÓKR)