MEKV1ST03 - Mekatronik 2
Lýsing
Í þessum áfanga er unnið áfram með hlið og talnakerfi sem notuð eru við stafrænar rásir. Nemendur læra að breyta tölum á milli þessara talnakerfa og læra einfaldar reikniaðferðir í tvíundakerfi. Lögð er áhersla á að þeir læri að nota sannleikstöflur til að skilgreina virkni rökrása og læri rithátt og uppsetningu á bólskum jöfnum (Boolean algebra) til að skilgreina virkni rökrása og hvernig má einfalda þær með hjálp Karnaughkorta. Farið er í teiknistaðla sem notaðir eru í rökrásateikningum og teiknaðar og prófaðar rásir í hermiforriti. Lögð er áhersla á verklegar æfingar og verkefnavinnu þar sem viðfangsefni eru brotin til mergjar, rásir tengdar, prófaðar og mældar og gerð samantekt á niðurstöðum. Einnig er lögð áhersla á notkun mælitækja til að finna tengivillur og bilanir ásamt prófunum í hermiforriti. Tölvutækni er notuð við verkefnavinnu og skýrslugerð. Nemendur læra að nota miðlæga þjónustuveitu og kynnast mikilvægi útgáfustýringar.
Einingar 3
Þekkingarviðmið
- notkun bólskrar algebru og sannleikstaflna við skilgreiningu á virkni rökrása
- notkun Karnaugh-korta til einföldunar á rökrásum
- miðlægri þjónustuveitu
Leikniviðmið
- nota Karnaugh-kort til einföldunar á rökrásum
- skilgreina einfaldar rökrásir með bólskri algebru
- vinna með skjöl í miðlægri þjónustuveitu
Hæfniviðmið
- öðlast stafrænt læsi sem felst í að skilja virkni helstu rökrása
- hanna rökrás út frá skilyrtri virkni
- nýta miðlæga þjónustuveitu við frágang verkefna
- búa til myndskreytta skýrslu samkvæmt staðli