Fara í efni

Áætlanir og leiðbeiningar

Viðbrögð við áreitni og ofbeldi

Áætlun gegn einelti - nemendur

Stefna VMA er að nemendur sýni samnemendum og samstarfsfólki alltaf kurteisi og virðingu. Einelti verður ekki umborið í skólanum eða innan vébanda hans. Meðvirkni nemenda í einelti er fordæmd.

Við skilgreiningu VMA á einelti er stuðst við reglugerð nr. 1009/2015 en þar segir í 3. gr.:

Einelti: Síendurtekin hegðun sem almennt er til þess fallin að valda vanlíðan hjá þeim sem fyrir henni verður, svo sem að gera lítið úr, móðga, særa eða ógna viðkomandi eða að valda honum ótta. Skoðanaágreiningur eða ágreiningur vegna ólíkra hagsmuna fellur ekki hér undir.

Einelti á vinnustað/skólum er alvarlegt vandamál sem stjórnendum ber skylda til að taka á. Einelti hefur víðtæk áhrif á þá sem fyrir því verða, bæði andleg og líkamleg. Auk þess sem einelti hefur oft neikvæð áhrif á starfsanda og vellíðan annarra starfsmanna/nemenda á vinnustaðnum/skólanum.

Dæmi um birtingamyndir eineltis:

        Misnotkun valds/ofstjórnun

● Óréttmæt gagnrýni tengd námi ef kennari á í hlut gagnvart nemanda.
● Meiðandi sögusögnum er komið af stað
● Nemandi er lítillækkaður, útilokaður eða tekinn fyrir
● Nemanda er á einhvern hátt mismunað af kennara/starfsmanni/samnemanda
● Nemanda er hótað
● Nemandi er beittur líkamlegu ofbeldi

Stjórnendur og starfsfólk bera ábyrgð á því að grundvallarreglur samskipta á vinnustað séu virtar. Nýnemum skal kynnt viðbragðsáætlun gegn einelti og áætlunin verði á vef skólans.

Þetta er ekki einelti
Undir einelti fellur EKKI skoðanaágreiningur eða hagsmunaárekstur sem kann að rísa á milli tveggja eða fleiri nemenda (nemenda og kennara) nema hann sé viðvarandi eða endurtekinn. Hins vegar er mikilvægt að leysa slík mál án tafar áður en þau þróast til verri vegar.

Tekið verður á fölskum ásökunum um einelti af sömu festu og einelti.

Ef upp kemur einelti
Komi upp einelti skulu þolendur leita til næsta stjórnanda. Nemandi getur leitað til hagsmunaráðs Þórdunu nemendafélags VMA, umsjónarkennara, sviðsstjóra, forvarnarfulltrúa, skólameistara, aðstoðarskólameistara eða námsráðgjafa. Þessir aðilar skulu sýna þolanda fullan trúnað. Nánari lýsing er í viðbragðsáætlun.

Ef nemandi upplifir einelti ber að taka kvörtun hans alvarlega og bregðast við á faglegan hátt. Leggja skal áherslu á að leysa málið eins fljótt og hægt er.

Öllum aðilum þarf að vera ljóst hvernig tekið er á kvörtun, við hverju megi búast og hvenær, bæði fyrir þann sem ber upp kvörtunina og þann sem kvartað er undan.

Mikilvægt er að við rannsókn eineltis sé farið eftir ákvæðum stjórnsýslulaga. Því er mælt með formlegri leið við meðferð eineltismála. Það á við ef upp kemur mál milli nemenda innbyrðis eða nemanda og starfsmanns. Þegar nemandi hefur gert á hlut starfsmanns eða samnemanda geta viðurlög orðið brottvísun úr skóla, tímabundin eða varanleg. Viðurlögum við því að starfsmaður geri á hlut nemanda er lýst í starfsmannahluta eineltisáætlunar.

Góður skóli
Stefna VMA er að vera góður framhaldsskóli. Í góðum skóla er virkt upplýsingaflæði og rík áhersla lögð á góð samskipti. Þar er ólíkum einstaklingum sýnt umburðarlyndi og fordómar eru ekki liðnir. Tekið er á vandamálum sem upp koma og viðbrögð eru markviss. Lausna er leitað í stað þess að grafa vandamál í þögn. Ólíklegra er að einelti eigi sér stað innan skóla þar sem starfsandi og námsumhverfi einkennast af virðingu og umburðarlyndi.

VIÐBRÖGÐ – nemendur
Nemandi sem verður fyrir einelti skal snúa sér hið fyrsta til trúnaðaraðila (t.d. skólameistara/ aðstoðarskólameistara, umsjónarkennara, sviðsstjóra, forvarnarfulltrúa, náms- og starfsráðgjafa eða hagsmunaráðs Þórdunu) og tilkynna um atvikið.

Þegar skólameistari eða trúnaðaraðilar nemenda fá vitneskju um einelti munu þeir bregðast við samkvæmt eftirfarandi viðbragðsáætlun. Strax er metin þörf þolanda fyrir bráðan stuðning og hann veittur. Lögð verður áhersla á að leysa málið hið fyrsta og koma í veg fyrir frekara einelti. Þolandi ákvarðar í samráði við trúnaðaraðila hvert framhaldið verður. Hægt er að velja á milli óformlegrar eða formlegrar málsmeðferðar.

Óformleg málsmeðferð
Slík málsmeðferð felur í sér að leitað er upplýsinga hjá þolanda og honum veittur stuðningur með trúnaðarsamtali eða ráðgjöf. Aðrir innan skólans eru alla jafna ekki upplýstir um málið. Mælt er með formlegri málsmeðferð nema þolandi ákveði óformlega málsmeðferð í samráði við trúnaðaraðila og/eða stjórnanda.

Formleg málsmeðferð
Gerð er hlutlaus athugun á málsatvikum. Rætt er við þolanda, geranda og aðra sem veitt geta upplýsingar um málið. Mælt er með þessari leið.

Formleg málsmeðferð - Ferli:
Kvarti nemandi yfir einelti í skólanum þarf að fara vandlega yfir málið og upplýsa atvik þess eftir bestu getu.


● Fara ber yfir málið í ró og næði með nemandanum sjálfum.
● Ræða við meintan geranda sem og aðra sem geta veitt upplýsingar um málið, t.d. samnemendur og kennara/starfsmenn.
● Draga ekki fleiri inn í málið en nauðsynlegt er. Rétt er að ræða við einn aðila í senn.
● Í einhverjum tilvikum er nauðsynlegt að afla gagna. Mikilvægt er að leita upplýsinga um tímasetningar og fá fram gögn ef einhver eru, s.s. tölvupósta, sms-skilaboð eða annað.
● Upplýsingar úr viðtölum og aðrar upplýsingar sem fengnar eru munnlega ber að skrá. Gæta skal þess að upplýsa þolanda um framvindu málsins eins og kostur er á meðan unnið er að lausn þess.
● Skólameistari og/eða aðstoðarskólameistari halda utan um gögn er málið varða, boða fundi og skrá fundagerð. Gögnin eru geymd skjalakerfi skólans merkt trúnaðarmál.

Niðurstöður
Þegar atvik hafa verið upplýst og talið er að meintur gerandi hafi beitt þolanda einelti þarf að huga að afleiðingum og lausn málsins. Þar má nefna aðvörun, áminningu, brottvísun úr áfanga/skóla. Þolanda og geranda er gefinn tími hjá náms- og starfsráðgjafa VMA.

Gerandi mun ávallt fá leiðsögn - og aðvörun.

Málinu verður fylgt eftir og rætt við aðila þess að ákveðnum tíma liðnum. Tímamörk skulu skráð. Fylgst verður með samskiptum aðila málsins. Láti gerandi ekki af eineltinu leiðir það til áminningar og hugsanlega til brottreksturs.

Sé þolandi og/eða gerandi undir 18 ára aldri ber skólastjórnendum að hafa samband við forráðamenn hvort sem um formlega eða óformlega málsmeðferð er að ræða.

Stjórnanda ber ávallt að skoða ásakanir um einelti. Öðrum ber að koma kvörtunum um einelti áfram til stjórnenda.

Sáttaumleitun
Sáttaumleitun er mikilvæg þegar atvik hafa verið upplýst. Ekki er þörf á formlegri áminningu í tilfellum þar sem vafi leikur á réttmæti ásakana. Markmiðið er að skapa námsumhverfi þar sem einelti er ekki liðið.

Gátlisti; áætlun gegn einelti - Nemendur
Ef tilkynning um einelti kemur til stjórnenda ber að bregðast strax við.

Formlegt ferli - Skólastjórnendur boða fundi.

Haldinn fundur með þolanda
Meta þarf hverjir ættu að koma á fundinn; skólahjúkrunarfræðingur, náms- og starfsráðgjafi, forvarnarfulltrúi, umsjónarkennari. Forráðmenn eru boðaðir ef nemendur eru yngri en 18 ára. Náms- og starfsráðgjafi skal alltaf mæta á fundinn til að gæta hagsmuna þolanda ef enginn stuðningsaðili er með þolandanum.

● Farið yfir málsatvik, gögn lögð fram ef við á.
● Metinn stuðningur (náms- og starfsráðgjöf, skólahjúkrunarfr., annað (HSN/SAK).
● Ef um alvarlegt ofbeldi að ræða, hafa samband við lögreglu.
● Skólameistari heldur fundargerð þar sem málsatvik koma fram og allir aðilar á fundinum skrifa undir hana áður en fundi líkur.

Haldinn fundur með geranda
Meta þarf hverjir ættu að koma á fundinn; skólahjúkrunarfræðingur, náms-og starfsráðgj. umsjónarkennari. Forráðmenn eru boðaðir ef nemandi er yngri en 18 ára. Náms- og starfsráðgjafi skal alltaf mæta á fundinn til að gæta hagsmuna geranda ef enginn stuðningsaðili er með gerandanum.
● Farið yfir málsatvik, gögn lögð fram ef við á.
● Skólameistari heldur fundargerð þar sem málsatvik koma fram og allir aðilar á fundinum skrifa undir hana áður en fundi lýkur.

Niðurstöður.
Þegar atvik hafa verið upplýst og talið er að meintur gerandi hafi beitt þolanda einelti þarf að huga að afleiðingum og lausn málsins. Þar getur komið til greina skrifleg aðvörun eða áminning og jafnvel brottvísun úr áfanga/skóla.

Gerendur og þolendur fá stuðning og leiðsögn undir handleiðslu stjórnanda og/eða náms- og starfsráðgjafa. Ef ástæða er til er nemendum vísað áfram til fagaðila utan VMA.

Skólastjórnendur fylgjast með samskiptum aðila málsins og kalla gerendur og þolendur til sín sitt í hvoru lagi að ákveðnum tíma liðnum. Tímamörkin eru ákveðin á fundum með aðilum málsins.

Sáttaumleitan
Mikilvægt er að ljúka málinu með sameiginlegum fundi þegar atvik hafa verið upplýst. Ekki er þörf á formlegri áminningu í tilfellum þar sem vafi leikur á réttmæti ásakana.

Áætlun gegn einelti - nemendur

Áætlun gegn kynferðislegri og kynbundinni áreitni og ofbeldi - nemendur

 

Kynbundin og kynferðisleg áreitni, og ofbeldi (hér eftir nefnt brot) er ekki liðið innan Verkmenntaskólans á Akureyri. Slíkt er hvorki liðið í samskiptum starfsfólks og nemenda, starfsfólks innbyrðis eða nemenda innbyrðis.

Skilgreining VMA á hvað kynferðisleg og kynbundin áreitni og ofbeldi styðst við reglugerð nr. 1000/2004 en þar segir í 3. gr.:

Kynbundin áreitni: Hegðun sem tengist kyni þess sem fyrir henni verður, er í óþökk viðkomandi og hefur þann tilgang eða þau áhrif að misbjóða virðingu viðkomandi og skapa aðstæður sem eru ógnandi, fjandsamlegar, niðurlægjandi, auðmýkjandi eða móðgandi fyrir viðkomandi.

Kynferðisleg áreitni: Hvers kyns kynferðisleg hegðun sem er í óþökk þess sem fyrir henni verður og hefur þann tilgang eða þau áhrif að misbjóða virðingu viðkomandi, einkum þegar hegðunin leiðir til ógnandi, fjandsamlegra, niðurlægjandi, auðmýkjandi eða móðgandi aðstæðna. Hegðunin getur verið orðbundin, táknræn og/eða líkamleg.

Ofbeldi: Hvers kyns hegðun sem leiðir til, eða gæti leitt til, líkamlegs eða sálræns skaða eða þjáninga þess sem fyrir henni verður, einnig hótun um slíkt, þvingun eða handahófskennda sviptingu frelsis.

Stefna og viðbragðsáætlun VMA skulu rifjaðar upp reglulega á og vera aðgengileg á vef skólans.

VIÐBRÖGÐ – Nemendur

Nemandi sem telur sig verða fyrir broti skal snúa sér hið fyrsta til þess aðila sem hann treystir vegna máls eða atviks tilkynna um atvikið. Trúnaðaraðili kemur málinu áfram til rétts móttakanda (skólameistara, aðstoðarskólameistara, náms- og starfsráðgjafa, sviðstjóra eða umsjónarkennara). Móttakandi ákvarðar síðan í samráði við þolandann hvert framhaldið verður og upplýsir þolanda um þær leiðir sem eru í boði. Hægt er að velja milli óformlegrar- eða formlegrar málsmeðferðar. Það skal tekið fram að í kynferðismálum er formleg málsmeðferð ávallt notuð.

Óformleg málsmeðferð felur í sér að leitað er upplýsinga hjá þolanda og honum veittur stuðningur með trúnaðarsamtali eða ráðgjöf. Aðrir innan skólans eru alla jafna ekki upplýstir um málið (á ekki við í kynferðismálum). Mælt er með formlegri málsmeðferð nema þolandi ákveði óformlega málsmeðferð í samráði við trúnaðaraðila og/eða stjórnanda.

Formleg málsmeðferð felur í sér að gerð er hlutlaus athugun á málsatvikum. Rætt er við þolanda, geranda og aðra sem veitt geta upplýsingar um málið. Mælt er með þessari leið.

Trúnaðaraðili boðar meintan geranda á fund og kannar afstöðu til kvörtunar eða tilkynningar. Berist tilkynning frá öðrum en þolanda boðar trúnaðaraðili þolenda á fund sinn og kannar afstöðu til tilkynningar. Ekki á að ræða við meintan geranda og þolanda saman.

Trúnaðaraðili skal kanna málið til hlítar meðal annars með því að ræða við aðila þess og aðra sem varpað geta ljósi á málið. Mikilvægt er að trúnaðaraðilinn haldi nákvæma atvikaskrá með dagsetningum, skrái upplýsingar úr viðtölum og allar munnlegar upplýsingar sem berast.

Bjóða skal þolenda sérfræðiaðstoð sálfræðings, náms-starfsráðgjafa eða annars meðferðaraðila með sérþekkingu á umræddum brotum. Óski viðkomandi eftir að kæra mál til lögreglu skal trúnaðaraðili vera til aðstoðar við það eftir föngum.

Æskilegt getur verið að fá utanaðkomandi til að rannsaka mál er varða kynferðislega áreitni eða ofbeldi. Slík mál eru sérstaklega viðkvæm og þarfnast rannsóknar alveg óháðra sérfræðinga.

Að loknum viðtölum við aðila málsins ákveður skólameistari hvort málið verði tekið til formlegrar meðferðar. Sé ákveðið að taka mál til formlegrar meðferðar skal grípa til nauðsynlegra ráðstafana varðandi námstilhögun aðila málsins. Þegar rannsókn máls er lokið kynnir trúnaðaraðili þeim aðilum er viðkoma málinu hvort hann telji að um brot hafi verið að ræða og gerir tillögur að viðbrögðum og hvaða úrræða er réttast er að grípa til. Mikilvægt er að ljúka málinu með sameiginlegum fundi þegar atvik hafa verið upplýst.

Þagnarskylda

Mæli lög ekki á annan veg er trúnaðaraðila og öðrum þeim sem að málinu koma skylt að gæta þagmælsku um einstök mál.

Gildistaka

Verklagsreglur þessar, sem settar eru á grundvelli reglugerð um aðgerðir gegn kynferðislegri áreitni, kynbundinni áreitni og ofbeldi á vinnustöðum nr. 1009/2015 og með hliðsjón af lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla nr. 10/2008

Áætlun gegn einelti - starfsfólk

Stefna VMA er að nemendur sýni samnemendum og samstarfsfólki alltaf kurteisi og virðingu. Einelti verður ekki umborið í skólanum eða innan vébanda hans. Meðvirkni starfsmanna í einelti er fordæmd.

Við skilgreiningu VMA á einelti er stuðst við reglugerð nr. 1009/2015 en þar segir í 3. gr.:
Einelti: Síendurtekin hegðun sem almennt er til þess fallin að valda vanlíðan hjá þeim sem fyrir henni verður, svo sem að gera lítið úr, móðga, særa eða ógna viðkomandi eða að valda honum ótta. Skoðanaágreiningur eða ágreiningur vegna ólíkra hagsmuna fellur ekki hér undir. Einelti á vinnustað/skólum er alvarlegt vandamál sem stjórnendum ber skylda til að taka á. Einelti hefur víðtæk áhrif á þá sem fyrir því verða, bæði andleg og líkamleg. Auk þess sem einelti hefur oft neikvæð áhrif á starfsanda og vellíðan annarra starfsmanna/nemenda á vinnustaðnum/skólanum.

Dæmi um birtingamyndir eineltis

  • Misnotkun valds/ofstjórnun
  • Óréttmæt starfstengd gagnrýni.
  • Meiðandi sögusögnum er komið af stað
  • Starfsmaður er lítillækkaður, útilokaður eða tekinn fyrir
  • Starfsmaður fær ekki stöðuhækkun eða starfsþjálfun.
  • Starfsmaður fær hótanir sem beinast gegn starfsöryggi hans.

Starfsmaður er beittur líkamlegu ofbeldi

 

Stjórnendur bera ekki aðeins ábyrgð á störfum starfsfólks heldur einnig á því að grundvallarreglur samskipta á vinnustað séu virtar. Nýjum starfsmönnum er kynnt stefna og viðbragðsáætlun VMA í eineltismálum strax við upphaf starfs. Stefnan og viðbragsáætlunin skulu rifjaðar upp reglulega á starfsmannafundum og vera aðgengileg á vef skólans.

Ef upp kemur einelti
Komi upp einelti á þolandi að leita til yfirmanns eða trúnaðaraðila. Allir aðilar skulu sýna þolanda fullan trúnað. Nánari lýsing er í viðbragðsáætlun. Ef starfsmaður upplifir einelti ber að taka kvörtun hans alvarlega og bregðast við á faglegan hátt. Leggja skal áherslu á að leysa málið eins fljótt og hægt er. Öllum aðilum þarf að vera ljóst hvernig tekið er á kvörtun, við hverju megi búast og hvenær, bæði fyrir þann, sem ber upp kvörtunina og hinn, sem kvartað er undan.

Mikilvægt er að við rannsókn eineltis sé farið eftir ákvæðum laga um réttindi og skyldur opinberra stafsmanna og stjórnsýslulaga þar sem einelti getur leitt til áminningar og jafnvel uppsagnar. Því er mælt með formlegri leið við meðferð eineltismála.

Viðbrögð - Starfsmenn
Starfsmaður sem verður fyrir einelti skal snúa sér hið fyrsta til skólameistara/aðstoðarskólameistara, jafnréttisfulltrúa eða trúnaðaraðila (öryggistrúnaðarmenn, hjúkrunarfræðingur eða trúnaðarmenn) og tilkynna um atvikið. Ef skólameistari/ aðstoðarskólameistari er gerandi málsins á að snúa sér til trúnaðaraðila.

Þegar yfirmaður eða trúnaðaraðilar VMA fá vitneskju um einelti munu þeir bregðast við samkvæmt eftirfarandi viðbragðsáætlun. Strax er metin þörf þolanda fyrir bráðan stuðning og hann veittur. Lögð verður áhersla á að leysa málið hið fyrsta og koma í veg fyrir frekara einelti. Þolandi í samráði við trúnaðaraðila ákvarðar hvert framhaldið verður. Hægt er að velja á milli óformlegrar eða formlegrar málsmeðferðar.

Óformleg málsmeðferð:
Slík málsmeðferð felur í sér að leitað er upplýsinga hjá þolanda og honum veittur stuðningur með trúnaðarsamtali eða ráðgjöf. Aðrir innan vinnustaðarins eru ekki upplýstir um málið. Mælt er með formlegri málsmeðferð nema þolandi ákveði óformlega málsmeðferð í samráði við trúnaðaraðila og/eða stjórnanda og telst málið þar með lokið.

Formleg málsmeðferð:
Gerð er hlutlaus athugun á málsatvikum. Rætt er við þolanda, geranda og aðra sem veitt geta upplýsingar um málið. Mælt er með þessari leið.

Formleg málmeðferð - Ferli:
Kvarti starfsmaður yfir einelti þarf að fara vandlega yfir málið og upplýsa atvik þess eftir bestu getu. Fara skal yfir málið í ró og næði með starfsmanninum sem kvartar. Ræða við meintan geranda sem og aðra sem geta veitt upplýsingar um málið, t.d. samstarfsmenn. Draga ekki fleiri inn í málið en nauðsynlegt er. Rétt er að ræða við einn aðila í senn. Í einhverjum tilvikum er nauðsynlegt að afla gagna. Mikilvægt er að leita upplýsinga um tímasetningar og fá fram gögn ef einhver eru, s.s. tölvupósta, sms-skilaboð eða annað.

Upplýsingar úr viðtölum og aðrar upplýsingar sem fengnar eru munnlega ber að skrá. Gæta skal þess að upplýsa þolanda um framvindu málsins eins og kostur er á meðan unnið er að lausn þess. Skólameistari og/eða aðstoðarskólameistari halda utan um gögn er málið varðar, boða fundi og skrá fundagerð. Gögnin eru geymd í skjalakerfi skólans merkt trúnaðarmál.

Niðurstöður:
Þegar atvik hafa verið upplýst og talið er að meintur gerandi hafi beitt þolanda einelti þarf að huga að afleiðingum og lausn málsins. Sem dæmi má nefna áminningu, breytingu á starfi,breytingar á vinnustað, vinnubrögðum eða vinnuskipulagi eða í undantekningartilvikum fyrirvaralausa brottvikningu, samanber dreifibréf fjármálaráðuneytisins sem finna má á heimasíðu þess.

Gerandi mun ávallt fá leiðsögn - og aðvörun.

Málinu verður fylgt eftir og rætt við aðila þess að ákveðnum tíma liðnum. Tímamörk skulu skráð. Fylgst verður með samskiptum aðila málsins. Láti gerandi ekki af eineltinu leiðir það til áminningar og hugsanlega uppsagnar hans úr starfi. Stjórnanda ber ávallt að skoða ásakanir um einelti.

Sáttaumleitun:
Sáttaumleitun er mikilvæg þegar atvik hafa verið upplýst, ekki er þörf á formlegri áminningu eða í tilfellum þar sem vafi leikur á réttmæti ásakana.
Markmiðið er að skapa vinnuumhverfi þar sem einelti fær ekki þrifist.

Gátlisti áætlun gegn einelti - Starfsmenn

Ef tilkynning um einelti kemur til stjórnenda ber að bregðast strax við.

Formlegt ferli - Skólastjórnendur boða fundi.

Haldinn fundur með þolanda

  • Meta hverjir ættu að koma á fundinn. Trúnaðarmaður starfsmanna er boðaður á fundinn til að gæta hagsmuna þolanda ef enginn stuðningsaðili er með þolandanum.
  • Farið yfir málsatvik, gögn lögð fram ef við á.
  • Metinn stuðningur (innan VMA eða aðrir fagaðilar (HSN/SAK).
  • Ef um alvarlegt ofbeldi að ræða, hafa samband við lögreglu.
  • Skólameistari heldur fundargerð þar sem málsatvik koma fram og allir aðilar á fundinum skrifa undir hana áður en fundi lýkur.
  • Haldinn fundur með geranda
  • Meta hverjir ættu að koma á fundinn; trúnaðarmaður starfsmanna er boðaður á fundinn til að gæta hagsmuna geranda ef enginn stuðningsaðili er með geranda.
  • Farið yfir málsatvik, gögn lögð fram ef við á.
  • Skólameistari heldur fundargerð þar sem málsatvik koma fram og allir aðilar á fundinum skrifa undir hana áður en fundi lýkur.

Niðurstöður

Þegar atvik hafa verið upplýst og talið er að meintur gerandi hafi beitt þolanda einelti þarf að huga að afleiðingum og lausn málsins. Þar getur komið til greina skrifleg aðvörun eða áminning og í undantekningartilvikum fyrirvaralaus brottvikning úr starfi. Unnið samkvæmt leiðbeiningum frá fjármálaráðuneyti sem finna má á heimasíðu þess. Gerendur og þolendur fá stuðning og leiðsögn innan VMA. Ef ástæða er til er starfsmönnum vísað áfram til fagaðila utan VMA. Skólastjórnendur fylgjast með samskiptum aðila málsins og kalla gerendur og þolendur til sín sitt í hvoru lagi að ákveðnum tíma liðnum. Tímamörkin eru ákveðin á fundum með aðilum málsins.

Sáttaumleitan
Mikilvægt er að ljúka málinu með sameiginlegum fundi þegar atvik hafa verið upplýst. Ekki er þörf á formlegri áminningu í tilfellum þar sem vafi leikur á réttmæti ásakana.

Áætlun gegn kynferðislegri og kynbundinni áreitni og ofbeldi - Starfsfólk

Kynbundin og kynferðisleg áreitni, og ofbeldi (hér eftir nefnt brot) er ekki liðin af hálfu starfsfólks og nemenda Verkmenntaskólans á Akureyri. Slíkt er hvorki liðið í samskiptum starfsfólks og nemenda, starfsfólks innbyrðis eða nemenda innbyrðis.

Skilgreining VMA á hvað kynferðisleg og kynbundin áreitni og ofbeldi styðst við reglugerð nr. 1000/2004 en þar segir í 3. gr.:
Kynbundin áreitni: Hegðun sem tengist kyni þess sem fyrir henni verður, er í óþökk viðkomandi og hefur þann tilgang eða þau áhrif að misbjóða virðingu viðkomandi og skapa aðstæður sem eru ógnandi, fjandsamlegar, niðurlægjandi, auðmýkjandi eða móðgandi fyrir viðkomandi.

Kynferðisleg áreitni: Hvers kyns kynferðisleg hegðun sem er í óþökk þess sem fyrir henni verður og hefur þann tilgang eða þau áhrif að misbjóða virðingu viðkomandi, einkum þegar hegðunin leiðir til ógnandi, fjandsamlegra, niðurlægjandi, auðmýkjandi eða móðgandi aðstæðna. Hegðunin getur verið orðbundin, táknræn og/eða líkamleg.

Ofbeldi: Hvers kyns hegðun sem leiðir til, eða gæti leitt til, líkamlegs eða sálræns skaða eða þjáninga þess sem fyrir henni verður, einnig hótun um slíkt, þvingun eða handahófskennda sviptingu frelsis.

Stjórnendur bera ekki aðeins ábyrgð á störfum starfsfólks heldur einnig á því að grundvallarreglur samskipta á vinnustað séu virtar. Nýjum starfsmönnum er kynnt stefna og viðbragðsáætlun VMA í brotamálum strax við upphaf starfs. Stefnan og viðbragsáætlunin skulu rifjaðar upp reglulega á starfsmannafundum og vera aðgengileg á vef skólans.

VIÐBRÖGÐ – Starfsmenn

Starfsmaður sem telur sig verða fyrir broti skal snúa sér hið fyrsta til trúnaðaraðila (Stjórnandi, jafnréttisfulltrúi, trúnaðarmaður eða öryggistrúnaðarmaður) og tilkynna um atvikið. Móttakandi upplýsir starfsmann um þær leiðir sem í boði eru:

  1. Starfsmaður getur tilkynnt mál til stjórnanda.
  2. Starfsmaður getur tilkynnt mál til Vinnueftirlitsins sem skráir atvik en rannsakar ekki.
  3. Félagsmaður getur leitað aðstoðar og ráðgjafar hjá viðkomandi aðildarfélagi.
  4. Trúnaðarmaður eða jafnréttisfulltrúi veitir aðstoð sem hlutlaus þriðji aðili ef viðkomandi óskar eftir því, til dæmis í viðtölum við stjórnanda og/eða fræðsluyfirvöld.

Ef stjórnanda/trúnaðaraðila berst kvörtun eða tilkynning um brot skal stjórnandi boða meintan gerand á fund og kanna afstöðu til kvörtunar eða tilkynningar. Berist tilkynning frá öðrum en þolenda, boðar stjórnandi þolenda á fund sinn og kannar afstöðu til tilkynningar. Stjórnandi ræðir við þolanda, tekin er ákvörðun um hvort stjórnandi eða óháður aðili fari með rannsókn. Stjórnandi getur kosið að standa utan rannsóknar og fela utanaðkomandi sérfræðingum að framkvæma óháða úttekt. Æskilegt getur verið að fá utanaðkomandi til að rannsaka mál er varða kynferðislega áreitni eða ofbeldi. Slík mál eru sérstaklega viðkvæm og þarfnast rannsóknar alveg óháðra sérfræðinga. Ef grunur er um refsivert brot skal vísa máli til lögreglu sem sér um rannsókn.

Ef um yfirmann er að ræða er hann vanhæfur til að taka ákvarðanir í málum málsaðila og tekur þá næsti yfirmaður ákvarðanir á meðan á málsmeðferð stendur.

Ef skólameistari er aðili máls skal beina kvörtun til Menntamálayfirvalda.

Ákveði stjórnandi að að sinna málinu sjálfur skal hann grípa til nauðsynlegra ráðstafana varðandi náms- eða vinnutilhögun aðila málsins. Reynt skal að ná sáttum um vinnutilhögun meðan málið er í skoðun. Óheimilt er að flytja þolenda til í starfi vegna kynbundinnar eða kynferðislegrar áreitni eða ofbeldis, nema viðkomandi óski þess. Mikilvægt er að stjórnandi hugi að vinnuumhverfi þolanda og hagi málum þannig að honum líði sem best í vinnu og þurfi ekki að eiga samskipti við meintan geranda. Stjórnandi skal kanna málið til hlítar meðal annars með því að ræða við aðila þess og eftir atvikum samstarfsfólk eða aðra sem varpað geta ljósi á málið. Ekki á að ræða við meintan geranda og þolanda saman.

Mikilvægt er að stjórnandi afli gagna um málið, haldi nákvæma atvikaskrá með dagsetningum, skrái upplýsingar úr viðtölum og allar munnlegar upplýsingar sem berast. Bjóða skal þolenda sérfræðiaðstoð með sérþekkingu á umræddum brotum. Óski viðkomandi eftir að kæra mál til lögreglu skal stjórnandi vera til aðstoðar við það eftir föngum.

Þegar rannsókn máls er lokið kynnir stjórnandi þeim aðilum er viðkoma málinu hvort hann telji að um brot hafi verið að ræða og gerir tillögur að viðbrögðum og hvaða úrræða er réttast er að grípa til. Mikilvægt er að ljúka málinu með sameiginlegum fundi þegar atvik hafa verið upplýst.

Þagnarskylda
Mæli lög ekki á annan veg er stjórnanda og öðrum þeim sem að málinu koma skylt að gæta þagmælsku um einstök mál.

Gildistaka
Verklagsreglur þessar, sem settar eru á grundvelli reglugerð um aðgerðir gegn kynferðislegri áreitni, kynbundinni áreitni og ofbeldi á vinnustöðum nr. 1009/2015 og með hliðsjón af lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla nr. 10/2008.

Uppfært 08. nóvember 2024 (HH)

Móttaka nemenda af erlendum uppruna

Verkmenntaskólinn á Akureyri býður nemendur af erlendum uppruna velkomna í skólann.

Þeir nemendur sem áhuga hafa á því að hefja nám við skólann þurfa að hafa náð hæfnistigi B1 í íslensku samkvæmt evrópska tungumálarammanum.

Markmiðið er að tryggja að nemendur hafi nægilega íslenskukunnáttu til að geta tekið virkan þátt í námi og félagslífi skólans, þar sem kennsla og námsmat fara fram á íslensku samkvæmt lögum.

Nemendur sem ekki hafa náð hæfnistigi B1 geta sótt um nám á Íslenskubrú við Menntaskólann á Akureyri, þar sem þeir fá markvissan stuðning í íslensku samhliða námi við hæfi. Þegar nemandi hefur náð B1-hæfni getur hann sótt um að hefja nám á þeim námsbrautum sem VMA býður uppá hverju sinni.

Hægt er að sækja um skólavist í VMA í nóvember fyrir vorönn og í maí fyrir haustönn ár hvert.

Umsóknir

Grunnskólar gegna mikilvægu hlutverki í að leiðbeina nemendum og forráðamönnum þeirra varðandi þessi viðmið, þar sem þeir meta námsárangur og stöðu nemenda í íslensku áður en sótt er um framhaldsskólanám. Hafi nemandi ekki stundað nám í íslenskum grunnskóla er hægt að óska sérstaklega eftir prófi sem metur íslenskukunnáttu hans.

Sótt er um nám á www.innritun.is

Þjónusta

Nemendum af erlendum uppruna stendur almennt sú sama þjónusta til boða og öðrum nemendum skólans. Auk þess geta þeir tekið ÍSAN-áfanga (íslenska fyrir nemendur af erlendum uppruna) samhliða námi eftir því sem við á.

Náms- og starfsráðgjafar veita frekari upplýsingar

Námið við VMA

Allt nám í skólanum fer fram á íslensku en hægt er að nálgast upplýsingar um námsleiðir á heimasíðunni.

Uppfært 26.05.2026 (SHM)

Viðbrögð við áföllum, vá og neyðartilvikum

Viðbrögð við ógnum, náttúruvá, smitsjúkdómum, efnaslysum o.fl.

Viðbragðsáætlunin segir til um skipulag og stjórnun aðgerða ef hættuástand kemur upp í VMA. Hún er unnin af fulltrúum starfshóps um viðbragðsáætlun fyrir framhaldsskóla í samstarfi við almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra og embætti Landlæknis. Markmið viðbragðsáætlunarinnar er að tryggja skipulögð viðbrögð og að nauðsynleg aðstoð berist á sem skemmstum tíma ef hættuástand skapast. Viðbragðsáætlunin er til leiðbeiningar um fyrstu viðbrögð en felur ekki í sér endanleg fyrirmæli. Þannig getur t.d. lögreglustjóri ákveðið breytingu á skipulagi með tilliti til ástands og aðstæðna hverju sinni.

Í neyðarstjórn VMA eru:

  • Skólameistari, æðsti stjórnandi stofnunarinnar.
  • Aðstoðarskólameistari.
  • Áfangastjórar.
  • Fulltrúar starfsmanna í öryggisnefnd VMA.

Viðbrögð vegna áfalla og neyðartilvika

Leiðbeiningar um viðbrögð í neyðartilvikum segja fyrir um skipulag og stjórnun aðgerða ef hættuástand kemur upp í skólastofnuninni eða í starfsemi á vegum skólastofnunarinnar eða í starfsemi á vegum hennar. Unnar af fulltrúum starfshóps sem skipaður er af SMÍ í samstarfi við almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra og Landlæknisembættið.

Rýmingaráætlun

Markmiðið með rýmingaráætlum er að skilgreina hvenær og hvernig rýming skólans fer fram. Grundvallaratriði er öryggi nemenda og starfsmanna í skólanum. Bruna- og öryggiskerfi er í skólanum og flóttaleiðir merktar.

Þegar brunaboð fer í gang eiga allir starfsmenn að fara í viðbragðsstöðu og nota tímann til að kynna sér leiðir út. Ef brunaboð hljóðnar og fer ekki aftur í gang er óþarfi að bregðast við. Hins vegar ætti að rýma húsið ef brunaboði hljóðnar ekki, fer ítrekað í gang eða ef starfsmenn hafa minnsta grun um að þess þurfi. Betra er að taka ákvörðum um rýmingu fyrr en seinna.

Við rýmingu velur starfsmaður leið út um næstu útidyr (eða annað björgunarop) sem er á reyklausu svæði. Flóttaleiðir eru merktar í rýmum skólans. Hver starfsmaður notar eigin dómgreind til að meta aðstæður, t.d. hvar nemendur eru hverju sinni, hvort hann eigi að fara með nemendahópinn út um venjulega útgönguleið eða út um neyðarútganga. Starfsmenn aðstoða nemendur við að rýma svæðið eins og við á. Fara skal hratt en skipulega út og skilja allt laust dót eftir, s.s. töskur, bækur og úlpur. Ekki nota lyftu.

Safnast skal saman á bílastæði skólans þar sem óhætt er að vera. Mikilvægt er að láta vita ef grunur er á að einhver sé inni á hættusvæði. Þegar búið er að rýma svæðið skal starfsmaður aðstoða á söfnunarsvæðinu eins og við á.

Bíða skal fyrirmæla frá slökkviliði eða stjórnendum varðandi að fara aftur inn í skólann.

Jafnréttisstefna og áætlun

Jafnréttisstefna VMA

Markmið með jafnréttisstefnu Verkmenntaskólans á Akureyri er að stuðla að jafnrétti á öllum sviðum og leggja áherslu á mikilvægi þess að allt starfsfólk fái notið hæfileika sinna til fulls. Halda skal sem jöfnustu hlutfalli kvenna og karla í öllu starfi innan skólans eftir því sem frekast er kostur og gæta sérstaklega að stöðu fólks með hlutlausa skráningu kyns í þjóðskrá. Í stefnumótun og ákvarðanatöku á öllum sviðum skólans skal unnið með kynjasamþættingu í huga. Hvers kyns mismunun sem byggð er á aldri, búsetu, fötlun, kyni, kynhneigð, kynvitund, lífsskoðunum, menningu, stétt, trúarbrögðum eða þjóðerni er óheimil, í hvaða formi sem hún kann að birtast og skal vinna markvisst gegn slíku. Kynferðisleg áreitni og kynbundin áreitni er ekki liðin. Jafnréttisstefnu Verkmenntaskólans á Akureyri er fylgt með jafnréttisáætlun. Hægt er að sjá hvernig nemendahópur VMA skiptist hér.

1. Staða og kjör starfsfólks

Innan skólans starfar fólk, með mismunandi menntun og reynslu, að margvíslegum störfum. Starfsmenn VMA eru í mismunandi stéttarfélögum og samningsbundin kjör þeirra og starfsaðstæður eru því ólíkar. Við ákvörðun launa skal þess gætt að starfsfólki sé ekki mismunað. Öllum skulu greidd jöfn laun og skulu njóta sömu kjara fyrir sömu eða jafn verðmæt störf. Stjórnendur VMA skulu tryggja að ekki sé mismunað við úthlutun verkefna og við ákvarðanir á starfsaðstæðum.

2. Mannauður og endurmenntun

Mikilvægt er að allir hafi sömu tækifæri í starfi innan skólans. Áhersla er lögð á að jafna hlutfall kynja í sambærilegum stöðum, einkum í stjórnunar- og áhrifastöðum eins og jafnréttislög gera ráð fyrir. Við ráðningar skulu jafnréttissjónarmið höfð að leiðarljósi og leitast við að hafa kynjahlutfall starfsfólks sem jafnast sé þess kostur þegar um jafn hæfa einstaklinga er að ræða. Gæta skal þess að allir starfsmenn hafi jafna möguleika til endurmenntunar og starfsþjálfunar. Einnig stendur skólinn fyrir fræðslu fyrir starfsfólk um jafnréttismál sem stuðla að samvinnu í fjölbreyttum starfsmannahópi.

3. Samræming vinnu og fjölskyldulífs

Skólinn leitast við að vera fjölskylduvænn vinnustaður, enda mikilvægt að allir njóti sín í starfi við skólann og telur VMA að samræming vinnu og fjölskyldulífs sé mikilvægur liður í jafnrétti. Til að stuðla að þessari samræminu hefur skólinn meðal annars leitast við að hafa haust- og vetrarfrí í samræmi við grunnskólana sem og bjóða starfsfólki upp á heimavinnu í samráði við stjórnendur sé þess kostur.

4. Kynbundið ofbeldi, kynbundin áreitni, kynferðisleg áreitni og einelti

Vellíðan á vinnustað er mikilvægur þáttur í gæðamarkmiðum skólans og er kynbundið ofbeldi, kynferðisleg eða kynbundin áreitni ekki liðin í VMA. Í skólanum er lögð áhersla á að innan hans ríki gagnkvæm virðing meðal starfsmanna skólans og nemenda. Í áætlun skólans gegn einelti eru leiðbeiningar um vinnulag í málum er varða kynbundið ofbeldi, kynbundna og kynferðislega áreitni. Í starfsmannakönnun sem gerð er annað hvert ár skal spyrja hvort starfsmenn hafi orðið fyrir einelti, kynbundnu eða kynferðislegri áreitni eða kynbundnu ofbeldi.

5. Staða í nemendasamfélaginu

Í lögum um framhaldsskóla nr. 92/2008 kemur fram að þeim sé ekki einungis ætlað að búa nemendur undir þátttöku í atvinnulífinu og frekara nám heldur skuli þeir einnig leitast við að efla siðferðisvitund, ábyrgðarkennd, víðsýni, sjálfstraust og umburðarlyndi. Auk þess að þjálfa þá í jafnrétti og gagnrýnni hugsun. Hlutverk framhaldsskóla er að stuðla að alhliða þroska allra nemenda og virkri þátttöku þeirra í lýðræðissamfélagi með því að bjóða hverjum nemenda nám við hæfi og samkvæmt kröfum aðalnámsskrár. Í VMA skal stuðlað að því að hver einstaklingur nýti hæfileika sína og krafta sem best, óháð andlegu og líkamlegu atgervi, kynferði, kynhneigð, litarhætti, þjóðerni, trú, búsetu eða efnahag.

6. Nemendur á opinberum vettvangi

Gæta skal þess að fjölbreyttur hópur nemenda komi fram fyrir hönd skólans og viðburðir og félagslíf nemenda skal skipulagt með virðingu og jafnrétti í huga. Hússnæði skólans skal ennfremur vera aðgengilegt öllum hópum og kennslurými henti fjölbreyttum hópi nemenda.

7. Nám og kennsla

Námsframboð skal höfða til allra kynja og stefnir skólinn að því að jafna kynjahlutföll í námi skólans með markvissum aðgerðum. Þetta verði m.a. gert með því að kynningar á námsleiðum, námsefni og kennslutilhögun séu þannig að þær höfði til allra kynja. Þá skulu kennarar vera meðvitaðir um misjafnt viðhorf kynja til stétta sem oft eru flokkaðar sem karla- eða kvennastéttir og leitast við að leiðrétta ranghugmyndir sem nemendur kunna hafa um einstaka starfsstéttir. Jafnframt skal unnið að því að andrúmsloft, viðhorf til náms og fyrirkomulag kennslu á einstökum brautum fæli enga frá því að velja þá námsleið sem einstaklingum hugnast.

Við inntöku á brautir eða svið þar sem fjöldi nemenda er takmarkaður skal leitast við að leiðrétta kynjamun reynist umsækjendur jafnhæfir og með sambærilegan bakgrunn. Kennarar skulu tryggja að ólíkum þörfum nemenda sé mætt með notkun á fjölbreyttum kennsluaðferðum og gæta skal þess að nemendum sé ekki ætlaður ákveðinn námsstíll vegna kyns. Þá skulu kennarar vera meðvitaðir um það hvernig þeir tala við nemendur, t.d. hvort kynjunum sé hrósað á sambærilegan hátt og hvort gerðar séu sömu kröfur til kynjanna um hegðun og samskipti á meðan á kennslu stendur. Í þjónustukönnun, sem framkvæmd er á tveggja ára fresti, skal kanna hvernig nemendum þykir kennarar og starfsfólk standa sig á þessum sviðum og leita leiða til úrbóta reynist þess þörf.

8. Eftirfylgni og framkvæmd

Jafnréttisáætlun þessi tók gildi við upphaf skólaárs 2016 og var endurskoðuð á vorönn 2019 og aftur í ársbyrjun 2023. Áætlunin skal vera aðgengileg fyrir starfsfólki og nemendum skólans og starfsfólki gert að hafa innihald hennar að leiðarljósi í starfi sínu og samskiptum sín á milli sem og við nemendur skólans. Þannig skal leitast við að samþætta áætlunina menningu skólans en skólameistari ber ábyrgð á að áætluninni sé fylgt og skal hún endurskoðuð á minnst þriggja ára fresti samkvæmt 18. grein laga nr. 10/2008 um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla. Skólameistari skal minna starfsfólk á inntak áætlunarinnar og benda því á leiðir í átt að frekara jafnrétti innan veggja skólans.

Telji starfsmaður eða nemandi að jafnrétti sé brotið í VMA skal hann hafa samband við jafnréttisfulltrúa, skólameistara, trúnaðarmenn starfsmanna eða hagsmunaráðsfulltrúa nemenda sem finna skulu hverju máli farveg. Við meðferð slíkra mála er sérstaks trúnaðar gætt. Slíkum málum er ekki framhaldið nema með samþykki meints þolanda. Kynbundin eða kynferðisleg áreitni, einelti eða annað ofbeldi varðar áminningu eða brottrekstri úr starfi eða úr skóla. Unnið skal eftir stefnum og viðbragðsáætlunum skólans s.s. áætlun gegn einelti.

Hér má finna jafnréttisáætlun skólans

Skólameistari skal tryggja að Jafnréttisáætluninni verði framfylgt, og að hún verði uppfærð með tilliti til 18. gr. laga nr. 10/2008. Jafnréttisáætlun VMA er hluti af skólanámsskrá skólans.

Leiðbeiningar um viðbrögð í neyðartilvikum

Getum við bætt efni síðunnar?