Fara í efni

Vélstjórn A-B-C-D

Nám í vélstjórn skiptist í A,B,C og D réttindi og fá nemendur réttindinn jafnt og þétt yfir námstíman. Nám til D réttinda tekur 5 ár og lýkur með réttindum til að starfa sem vélstjóri ásamt stúdentsprófi. Námið er einnig góður grunnur undir framhaldsnám í tæknitengdum greinum í háskóla. 

Nemendur sem ætla í nám í vélstjórn sækja um grunnnám málm-og véltæknigreina í umsókn.

Grunnnám málm- og tæknigreina

Grunnnám málm- og véltæknigreina er eins árs nám og skilar nemendum hæfni á 2. þrepi. Námið er bæði bóklegt og verklegt. Kennsluaðferðir eru fjölbreyttar, byggja m.a. á leiðsagnarmati og miðast við að allir nemendur eigi kost á að nýta hæfileika sína og fá endurgjöf á verkefni sín. Lögð er áhersla á sjálfstæð vinnubrögð og vinnusemi nemenda. Námssamfélagið gengur út á samvinnu kennara og nemenda sem skapar jákvætt og uppbyggilegt umhverfi til náms og starfa. 

Brautarlýsing

Vélstjórnarnám skiptist í fjögur námsstig: A, B, C og D og veitir hvert um sig ákveðin réttindi samkvæmt reglugerð 535/2008. Nemendur sem ljúka B réttindum hafa samhliða öðlast rétt til töku sveinsprófs í vélvirkjun að loknu starfsnámi og nemendur sem ljúka námi til C stigs hafa einnig lokið stúdentsprófi. Lokastig námsins, til D réttinda er á 4. þrepi. Námið er skipulagt í samræmi við alþjóðlegar kröfur (IMO, STCW) og öðlast nemendur haldgóðan grunn til starfa jafnt til sjós og lands.

Inntökuskilyrði

Inntökuskilyrði á brautina eru að nemendur hafi lokið kjarnagreinum grunnskóla með fullnægjandi árangri. Námsárangur í kjarnagreinum mun einnig hafa áhrif á inn á hvaða þrep nemandinn innritast. Ef fleiri sækja um nám á brautinni en skólinn getur tekið við getur inntökuviðmið orðið hærra en lágmarkið.

Námið

Vélstjórnarnám skiptist í meginatriðum í sex námsstig sem að námi loknu veita hvert um sig, að öðrum skilyrðum uppfylltum, rétt til að fá útgefið skírteini til starfa sem vélstjóri.

Vélstjórn D er til sjötta námsstigs, enda hafi nemandi lokið fimmta námsstigi. Sjötta námsstig (réttindi D) er til að gegna stöðu yfirvélstjóra og 1. vélstjóra á skipum með ótakmarkað vélarafl (STCW III/2). Þetta námsstig er jafnframt nám í kælivélavirkjun og veitir réttindi til starfsheitisins vélfræðingur.

Í náminu öðlast nemendur einnig viðeigandi menntun og þjálfun þannig að þeir geti sinnt vélstjórnarstörfum í landi, t.d. á sviði orku- og veitufyrirtækja og í iðnaði. Til sjós er starfssvið vélstjóra að annast rekstur og viðhald vél- og rafbúnaðar og tryggja, í samvinnu við aðra yfirmenn um borð, að rekstur skipsins fullnægi gildandi lögum og reglum, s.s. um öryggi skipa og mengunarvarnir. Véla- og tækjabúnaður skipa er mjög fjölbreyttur þar sem skip eru hönnuð til ólíkra hlutverka. Störf vélstjóra eru því víðtæk og spanna starfssvið margra starfsstétta í landi.

Þeir sem ljúka námi til alþjóðlegra atvinnuréttinda og afla sér alþjóðlegra atvinnuskírteina hafa með því öðlast heimild til þess að gegna þeirri stöðu sem atvinnuskírteini veitir þeim rétt til án tillits til gerðar skips, hvar skipið er skráð og þess hafsvæðis þar sem skipið er í förum. Til þess að fá heimild til að gegna stöðu á erlendu skipi þarf þó að koma til samþykki siglingayfirvalda fánaríkis skipsins. Í landi stunda vélstjórar margvísleg störf og nýtist menntun þeirra vel á mörgum sviðum. Vélstjórar hafa á undanförnum árum og áratugum átt greiðan aðgang að störfum í landi, bæði við rekstur og viðhald vélbúnaðar, auk ýmissa stjórnunarstarfa. Nemendur sem fá þjálfun og undirbúning til vottunar á meðferð og notkun flúoraðra gróðurhúsalofttegunda í kælikerfum hafa menntun til sérhæfðra starfa í kæliiðnaði.

Annarplan

Ö VÉLSTJÓRN A*-B (222 ein) (Nánari brautarlýsing hér) EI.  
1.ö ENSK2LS05 GRUN1FF04 HEIL1HH04 LÍFS1SN02 LOGS1PS03 SMÍÐ1NH05 STÆF2RH05 VÉLS1GV05   34

 

 

 

 

 

2.ö GRUN2ÚF04 HEIL1HB02 HLGS2MT03 ÍSLE2HS05 LÍFS1SN01 RAMV1HL05 SMÍÐ2NH05 STÆF2AM05 VÉLS2KB05 35
3.ö EÐLI2AO05 EFMA1JS04 ENSK2RM05 ÍSLE2KB05 RAFS1SE03 RAMV2MJ05 VÉLF1AE05A VÉLS2TK05 SKYN2EÁ01 37
4.ö EFNA2ME05 IÐNT3AC05  RAMV2SR05 REGL2HR05 SMÍÐ3VV05 STÝR1LV05 VÉLF2VE05B UMHV2ÓS05   40
5.ö HLGS2SF04 HÖSK2SS05 KÆLI2VK05 LAGN3RS04 REIT2AR05 SJÓR2ÁS05 STÆF2VH05 VÉLS3VK05   38
6.ö RAMV3RF05 RÖKR3IS05 STÖL2SA04 VÉLS3SV05 VÉLT3ÁL04  VIÐH3VV04 VIÐS2PM05 VÖRS1VÖ04   36
  VÉLSTJÓRN C (294 ein) (Nánari brautarlýsing hér)  
7.ö DANS2OM05 EFNA3OH05 ÍSLE3xx05/ÍSLE3BL05 KÆLI3VC05 RAMV3VC04 STJR3ÁS01 STÆF3FD05 VÉLF3VC04C   34
8.ö EÐLI3AV05 EFNA3VC04 ENSK3VG05 ÍSLE3xx05/ÍSLE3BL05 RAMV4VC05 RÖKR3VC04 STÆF3HD05 STJR4VM05   38
  VÉLSTJÓRN D (341 ein) (Nánari brautarlýsing hér)    
9.ö BURF4VD04 RAMV4VD05 REGL4RD05 ÚTRE4SD04 VÉLF4VD05D         23  
10.ö KÆLI4VD05 LOKA4VD04 REIT4SL05 VÉLT4VD05 VÉLF4VD05E         24  

 

  A réttindi* B réttindi C réttindi D réttindi
Greinar 1. önn** 2. önn** 3. önn 4. önn 5. önn 6. önn 7. önn 8. önn 9. önn 10. önn
Efnafræði       EFNA2ME05     EFNA3OH05 EFNA3VC04    
Enska   ENSK2LS05     ENSK2RM05     ENSK3VG05    
Eðlisfræði     EÐLI2AO05         EÐLI3AV05    
Danska             DANS2OM05      
Íslenska     ÍSLE2HS05   ÍSLE2KB05   ÍSLE3XX05 ÍSLE3BL05 ÍSLE3XX05 ÍSLE3BL05    
Stærðfræði STÆF2RH05 STÆF2AM05     STÆF2VH05   STÆF3FD05 STÆF3HD05    
Lífsleikni LÍFS1SN02 LÍFS1SN01                
Lög og reglur         SJÓR2ÁS05 REGL2HR05     REGL4RD05  
Heilbrigðisfræði     HBFR1SA03              
Íþróttir HEIL1HH04 HEIL1HD04                
Skyndihjálp     SKYN2EÁ01              
Teikning GRUN1FF04 GRUN2ÚF04   IÐNT3AC05 LAGN3RS04          
Hönnun     HÖSK2SS05     STÖL2SA04        
Kælitækni     KÆLI2VK05       KÆLI3VC05     KÆLI4VD05
Lokaverkefni                 LOKA4VD04  
Rafmagn   RAMV1HL05 RAMV2MJ05 RAMV2SR05 RAMV3RF05 REIT2AR05 RÖKR3IS05 RAMV3VC04 RAMV4VC05 RÖKR3VC04 RAMV4VD04 REIT4SL05
Stjórnun           STJR2SB04   STJR4VM05   ÚTRE4SD04
Suða LOGS1PS03 RAFS1SE03 HLGS2MT03                
Smíðar SMÍÐ1VA06 SMÍÐ2VB06   SMÍÐ3VB06            
Umhverfisfræði           UMHV2ÓS05        
Vélar VÉLS1GV05 VÉLS2KB05 VÉLF1AE05A VÉLS2TK05 VÉLF2VE05B STÝR1LV05 VÉLS3VK05 VÉLT3ÁL04 VÉLS3SV05 VÉLF3VC04C   VÉLF4VD05D VÉLF4VD05E VÉLT4VD05
Viðhald       VIÐH3VV04   VÖRS1VÖ04        
Einingar 32 38 39 35 39 36 33 38 23 24

*ATH! Vélstjórn A (61 ein) er fyrst og fremst fagnám til að öðlast atvinnuréttindi til starfa á skipum með vélarafl minna en 750 kw (auk siglingatíma). Sjá hér brautarlýsingu

*Vél­virkjun er samþætt vél­stjórn­ar­námi til VB rétt­inda. Sjá brautarlýsingu vélvirkjunar hér

** Fyrstu tvær annir eru nemendur skráðir í grunnnám málm- og véltæknigreina

 

Getum við bætt efni síðunnar?