HLGS2SF04 - Hlífðargassuða stálsmiða
							Undanfari : HLGS2MT03
						
																
							Í boði
							: Ekki alltaf
						
																															Lýsing
Í áfanganum læra nemendur að undirbúa og sjóða MIG-suðu og Tig-suðu á áli, ryðfríu stáli og einnig á stáli. Þeir læra að sjóða efnisþykktir 2 – 6 mm í stál , ryðfrítt stál og ál samkvæmt gæðaflokki C (ÍST EN 25817) í plötu og rör. Þeir skipuleggja suðuverkefni m.t.t. krafna um gæði, öryggi og umhverfi. Nemendur læra að sjóða eftir suðuferilslýsingum og öðlast þekkingu á kostum mismunandi suðuvíra og aðferða.
					Einingar: 4