Fara í efni

Kjötiðn


Nám í kjötiðn verður ekki í boði á haustönn 2025.

Kjötiðnaðarmaður sér um að vinna og pakka kjöti og kjötréttum fyrir neytendur, setur upp girnileg kjötborð og þjónustar viðskiptavini. Hann starfar meðal annars í kjötvinnslum, verslunum, sláturhúsum og við matvælasölu. Starfið krefst nákvæmni og ábyrgðar, þar sem kjötiðnaðarmaður tryggir gæði og ferskleika vörunnar í samræmi við gæðaferla og reglur um rekjanleika. Fagmennska og góð þjónusta skipta miklu máli í starfinu. Kjötiðn er löggilt iðngrein.

Brautarlýsing

Kjötiðnaðarmaður útbýr kjöt og kjötrétti í neytendapakkningar, setur upp kjötborð og afgreiðir viðskiptavini. Hann starfar m.a. í kjötvinnslu, í kjötdeildum verslana, í sláturhúsum eða við sölu á matvælum. Hann ber ábyrgð á útkomu vinnu sinnar gagnvart viðskiptavinum. Kjötiðnaðarmaður vinnur í samræmi við gæðaferla og gæðastaðla um innra eftirlitskerfi vinnustaða, vinnureglur um rekjanleika vöru og þjónstu sem og á afgreiðslu á vörum og þjónustu og almennar siðareglur. Kjötiðn er löggilt iðngrein.

Nánari upplýsingar um brautina er hægt að nálgast hér.

Inntökuskilyrði

Nemendur þurfa að vera á samningi í greininni við upphaf náms.

 

Annarplan

Kjötiðn er verklegt og bóklegt fagnám sem lýkur með sveinsprófi á 3. hæfniþrepi. Námið er 288 einingar og fer fram í skóla (88 ein.) og á viðurkenndum starfsnámsstöðum (200 ein.) sem hafa rétt til að taka nemendur á námssamning. Nemandinn þarf að gera samning um ferilbók áður en hann hefur nám á námsbraut.

ATH! Hópur byrjaði á haustönn 2023 og ekki hefur verið ákveðið hvenær hópur mun fara næst af stað, sem ræðst fyrst og fremst af nemandafjölda í greininni.
Nánari upplýsingar veitir sviðsstjóri verknáms í síma 464-0300.

Greinar

1.önn*

2.önn*

3.önn*

 
Enska   ENSK2LS05    
Stærðfræði   STÆF2TE05    
Íslenska ÍSLE2HS05      
Innra eftirlit IEMÖ1GÆ02      
Örverufræði   ÖRVR2HR02    
Næringarfræði   LÍFF2NÆ05    
Skyndihjálp SKYN2EÁ01      
Hreyfing HREYFING HREYFING HREYFING  
Fagfræði KJÖF1VÖ08   KJÖF3PG05 KJÖF4PG03  
Kjötiðnaður KJÖT2KM20   KJÖT3PY22  
Nám og tölvur     NÁTÖ1UT03  
Starfsþjálfun Allt að 126 vikur á starfsnámsstöðum. Samning (ferilbók) þarf að gera áður en nemandi hefur nám á námsbraut. STÞ-200 EIN
Samtals 37 18 34 289

*Námið er skipulagt sem 3 annir í skóla, sem þó eru ekki kenndar í samfellu, og ræður framvinda rafrænnar ferilbókar tíma á starfsnámsstað. Til að ljúka námi í kjötiðn þarf að ljúka öllum þáttum námsins, þ.m.t. vinnustaðanámi/starfsþjálfun sem staðfest er með lokum á rafrænni ferilbók. Eftir útskrift getur nemandinn þreytt sveinspróf.

 Viðbótarnám til stúdentsprófs að loknu starfsnámi

 

Greinar

       
Íslenska ÍSLE2HS05 ÍSLE2KB05 ÍSLE3BL05 Íslenska á 3.þrepi
Enska ENSK2LS05      
Danska DANS2OM05      
Stærðfræði STÆF2xx05
(5 ein/2. þrep)
     
Ensku-/stærðfræðival ENSK/STÆF
5 einingar
ENSK/STÆF
5 einingar
ENSK/STÆF
5 einingar
 
Bóknámsval 5 eininga val      

(Síða uppfærð 25.02.2026 DAN)

Getum við bætt efni síðunnar?