ÖRVR2HR02 - Örverufræði
Í boði
: Haust
Flokkur
: Dagskóli
Lýsing
Í áfanganum er fjallað um almenn lífsskilyrði örvera og gerla, um veirur, ger- og myglusveppi. Áhersla er lögð á mikilvægi hreinlætis til að koma í veg fyrir matarsjúkdóma.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- náttúrulegum heimkynnum örvera
- flokkun örvera
- smitleiðum örvera
- vaxtarskilyrðum örvera og vaxtarkúrfu örvera
- tegundum sjúdómsvaldandi bakería
- á matarsjúkdómum
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- meta áhættu við framleiðslu, framreiðslu og dreifingu matvæla
- skilja hver eru grundavallaratriði við framleiðslu og dreifingu matvæla m.t.t. yfirfærslu örvera
- meta ferskleika hráefnis með tilliti til gæða
- koma í veg fyrir krossmengun
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- meta kröfur til hráefna
- meta kröfur til hreinlætis á vinnustað
- fyrirbyggja krossmengun
- meta hvenær á að mæla hitastig
- bregðast við frávikum