Fara í efni

Ábyrgð nema

 

Þegar nemandi er innritaður í skólann hefur hann staðfest umsókn sína um skólavist. Um leið samþykkir hann að gangast undir þær skyldur og reglur sem á herðum hans hvíla sem þegn í skólasamfélaginu. Skólastarf lýtur ákveðnum lögmálum eins og hinn almenni vinnumarkaður. Ein meginforsendan fyrir því að starfsemi geti farið fram og árangur náist er að fólk mæti til vinnu/í skólann og uppfylli þær kröfur sem starfið/námið gerir til þess. Skólinn hefur einnig margvíslegum skyldum að gegna gagnvart nemendum sínum og ber honum að veita þeim ýmiss konar þjónustu.

Um ábyrgð nemenda vísast til 33. gr. a.í lögum um framhaldsskóla nr. 92/2008

Um réttindi og skyldur vísast til 14. kafla í aðalnámskrá framhaldsskóla

Um ábyrgð og skyldur aðila skólasamfélagsins vísast til reglugerðar nr. 326/2016

16. september 2016.
Getum við bætt efni síðunnar?