Sjúkraliðabraut

Sjúkraliðabraut undirbýr nemendur fyrir krefjandi og gefandi störf innan heilbrigðiskerfisins. Námið er frábær grunnur fyrir þá sem vilja starfa sem sjúkraliðar eða undirbúa sig fyrir frekara nám í heilbrigðisvísindum, eins og hjúkrunarfræði eða sjúkraflutninga. Námið veitir bæði hagnýta þekkingu og mikilvæga reynslu fyrir þá sem vilja starfa í heilbrigðisgeiranum. Náminu líkur með starfsréttindum.
Brautarlýsing
Sjúkraliðabraut er ætlað að undirbúa nemendur undir krefjandi störf við hjúkrun, endurhæfingu og forvarnir bæði á heilbrigðisstofnunum og á heimilum fólks þar sem reynir mikið á samskiptafærni og siðferðisvitund starfsmanna. Sjúkraliðanám getur verið góður grunnur fyrir frekara nám í heilbrigðisvísindum.
Nám á sjúkraliðabraut er 205 einingar og útskrifast nemendur með hæfni á 3. þrepi. Námstími er 3 – 4 ár og ætli nemandi að ljúka námi á 3 árum þarf hann að ljúka 68 einingum að jafnaði á ári. Til að standast námsmat í áfanga og fá heimild til að hefja nám í eftirfarandi áfanga þarf lágmarkseinkunnina 5. Reglur um námsframvindu eru birtar í skólanámskrá. Við námslok skal hlutfall eininga á 1. þrepi vera 17 - 33%, á 2. þrepi 33 - 50% og á 3. þrepi 17 - 33%.
Til að ljúka námi á námsleiðinni þarf að ljúka öllum hlutum náms, þ.m.t. starfsþjálfun. Ræður framvinda rafrænnar ferilbókar tíma á starfsnámsstað.
Inntökuskilyrði
Inntökuskilyrði á brautina eru að nemendur hafi lokið kjarnagreinum grunnskóla með fullnægjandi árangri. Námsárangur í kjarnagreinum mun einnig hafa áhrif á inn á hvaða þrep nemandinn innritast. Ef fleiri sækja um nám á brautinni en skólinn getur tekið við getur inntökuviðmið orðið hærra en lágmarkið.
Annarplan
Það skipulag sem sett er fram hér miðast við dagskóla. Skipulag og námsframboð í fjarnámi kann að vera með öðrum hætti og lýtur skilyrðum varðandi nemendafjölda.
| 1. önn | 2. önn | 3. önn | 4. önn | 5. önn | 6. önn | |
| Íslenska | ÍSLE2HS05 | ÍSLE2KB05 | ||||
| Enska | ENSK2LS05 | ENSK2RM05 | ENSK3VG05 | |||
| Stærðfræði | STÆF2TE05 | |||||
| Danska | DANS2OM05 | |||||
| Heilsa og lífstíll | HEIL1HH04 | HEIL1HD04 | ||||
| Lífsleikni | LÍFS1SN02 | LÍFS1SN01 | ||||
| Náttúrulæsi | NÁLÆ1UN05 | |||||
| Menningarlæsi | MELÆ1ML05 | |||||
| Heilbrigðisfræði | HBFR1HH05 | |||||
| Líffæra-og lífeðlisfræði | LÍOL2SS05 | LÍOL2IL05 | ||||
| Hjúkrun | HJÚK1AG05 | HJÚK3ÖH05 | HJÚK2HM05 - HJÚK2TV05 | HJÚK3FG05 - HJÚK3LO03 | ||
| Verkleg hjúkrun | HJVG1VG06 | |||||
| Samskipti | SASK2SS05 | |||||
| Sálfræði | SÁLF2SÞ05 | SÁLF3CC05* | ||||
| Sjúkdómafræði | SJÚK2MS05 | SJÚK2GH05 | ||||
| Skyndihjálp | SKYN2EÁ01 | |||||
| Hreyfing | HREY1YY01** | |||||
| Næringarfræði | LÍFF2NÆ05 | |||||
| Siðfræði heilbrigðisstétta | SIÐF1SÁ05 | |||||
| Upplýsingatækni | UPPT1ÁH02 | |||||
| Vinnustaðanám | VINN3ÖH08*** | VINN2LS08*** | VINN3GH08*** | |||
| Lyfjafræði | LYFJ2LS05 | |||||
| Sýklafræði | SÝKL2SS05 | |||||
| Samtals ein. á önn | 31 | 30 | 37 | 31 | 33 | 16 |
| Starfsþjálfun | STAF2ÞJ27 - Starfsþjálfun (ferilbók) má hefja eftir að nemandi hefur lokið vinnustaðanámi 4. annar brautar | |||||
Nánari útskýringar á vali (samkvæmt brautarlýsingu)
*CC Val í sálfræði
**YY Val í íþróttum
***VINN-áfangar - 4. önn - 3 vikur í byrjun janúar, 5. önn - 3 í vikur í september; 6. önn - 3 vikur í byrjun janúar.
Nauðsynlegt er að nemendur komi til sviðsstjóra og kynni sér ferilbók áður en starfsþjálfunartímabil hefst. Fyrri starfsreynsla fæst ekki metin á móti starfsþjálfun.
Viðbótarnám til stúdentsprófs að loknu starfsnámi
Markmið með námsleiðinni er að uppfylla þær lágmarkskröfur sem aðalnámskrá framhaldsskóla setur til stúdentsprófs. Sérhæfing nemandans er fólgin í starfsnámi hans. Áfangar starfsnámsbrautar í þeim greinum sem taldar eru upp hér í töflu teljast með, t.d. ENSK2LS05 og ÍSLE2HS05 sem finna má á flestum starsfnámsbrautum, og þurfa nemendur því aðeins að bæta við sig þeim einingum í töflunni sem þeir hafa ekki þegar lokið í sínu starfsnámi.
Greinar |
||||
| Íslenska | ÍSLE2HS05 | ÍSLE2KB05 | ÍSLE3BL05 | Íslenska á 3.þrepi |
| Enska | ENSK2LS05 | |||
| Danska | DANS2OM05 | |||
| Stærðfræði | STÆF2xx05 (5 ein/2. þrep) |
|||
| Ensku-/stærðfræðival (2./3. þrep) |
ENSK/STÆF 5 einingar |
ENSK/STÆF 5 einingar |
ENSK/STÆF 5 einingar |
|
| Bóknámsval | 5 eininga val |
Síða uppfærð 24.01.2025