Náttúruvísindabraut

Náttúruvísindabraut er ætlað að veita nemendur góða og almenna þekkingu á sviði náttúruvísinda. Brautinn er góður undirbúningur fyrir háskólanám m.a. á sviði heilbrigðis-og raunvísinda.
Brautarlýsing
Náttúruvísindabraut er ætlað að veita nemendum góða og almenna þekkingu á sviði náttúruvísinda. Auk kjarnagreina er lögð áhersla á raungreinar s.s. efnafræði, líffræði, eðlisfræði og jarðfræði auk stærðfræði. Brautin er góður undirbúningur fyrir háskólanám m.a. á sviði heilbrigðis- og raunvísinda.
Inntökuskilyrði
Inntökuskilyrði á brautina eru að nemendur hafi lokið kjarnagreinum grunnskóla með fullnægjandi árangri. Námsárangur í kjarnagreinum mun einnig hafa áhrif á inn á hvaða þrep nemandinn innritast. Ef fleiri sækja um nám á brautinni en skólinn getur tekið við getur inntökuviðmið orðið hærra en lágmarkið.
Nemendur með annað móðurmál en íslensku þurfa að hafa lokið námsefni í íslensku sem nemur B1 samkvæmt evrópska tungumálarammanum við innritun á brautina.
Nánari upplýsingar um inntökuskilyrði er hægt að nálgast hér.
Námið
Náttúruvísindabraut er bóknámsbraut og nám og kennsla fer fyrst og fremst fram í skólanum. Nemendur taka helstu raungreinar og stærðfræði í kjarna og geta síðan valið hvaða greinum náttúruvísinda þeir vilja sérhæfa sig í. Kennsluaðferðir eru fjölbreyttar, byggja m.a. á verklegum æfingum og leiðsagnarmati og miðast við að allir nemendur eigi kost á að nýta hæfileika sína og fá endurgjöf á verkefni sín. Lögð er áhersla á sjálfstæð vinnubrögð og vinnusemi nemenda. Námssamfélagið gengur út á samvinnu kennara og nemenda sem skapar jákvætt og uppbyggilegt umhverfi til náms og starfa.
Annarplan
Greinar |
1.önn Haust |
2.önn Vor |
3.önn Haust |
4.önn Vor |
5.önn Haust |
6.önn Vor |
|
| Danska | DANS2OM05 | DANS2LN05 | |||||
| Enska | ENSK2LS05 | ENSK2RM05 | ENSK3VG05 | Enska á 3.þrepi | |||
| Íslenska | ÍSLE2HS05 | ÍSLE2KB05 | Íslenska á 3. þrepi/ÍSLE3BL05 | Íslenska á 3. þrepi/ÍSLE3BL05 | |||
| Stærðfræði | STÆF2RH05 | STÆF2AM05 STÆF2LT05 |
STÆF2VH05 | STÆF3ÖT05 | STÆF3FD05 | STÆF3HD05 | |
| Heilsa og lífstíll | HEIL1HH04 | HEIL1HD04 | |||||
| Lífsleikni | LÍFS1SN02 | LÍFS1SN01 | |||||
| Menningarlæsi | MELÆ1ML05 | ||||||
| Fjármálalæsi | LÍFS1FN04 | ||||||
| Lokaverkefni | LOVE3SR05 | ||||||
| Eðlisfræði | EÐLI2AO05 | EÐLI3VB05 | |||||
| Efnafræði | EFNA2ME05 | EFNA3EL05 | |||||
| Jarðfræði | JARÐ2EJ05 | ||||||
| Líffræði | LÍFF2LK05 | LÍFF3SE05 | |||||
| Raungreinaval | Raungrein | Raungrein x 2 áf. | Raungrein | ||||
| Spænska | SPÆN1RL05 | SPÆN1HT05 | SPÆN1RS05 | ||||
| Hreyfing | HREYFING | HREYFING | |||||
| Óbundið val | 5 einingar | 13 einingar | |||||
| Samtals einingar: | 30 | 35 | 31 | 36 | 35 | 33 | 200 |