Húsasmíði - Kvöldnám
ATH! Hópur byrjaði á haustönn 2025 og næst er stefnt á að byrja með hóp haustönn 2027.
Brautarlýsing
Miðað er við að nemandi hafi náð 22 ára aldri og/eða hafi viðeigandi starfsreynslu. Nemendur sem eru að vinna í faginu ganga fyrir í inntöku. Nemendur sem hafa undirgengist raunfærnimat fá viðkomandi áfanga metna. Ef fleiri sækja um nám á brautinni en skólinn getur tekið við getur inntökuviðmið orðið hærra en lágmarkið.
Nemendur með annað móðurmál en íslensku þurfa að hafa lokið námsefni í íslensku sem nemur B1 samkvæmt evrópska tungumálarammanum við innritun á brautina.
Athugið að auk ofangreindra áfanga þurfa nemendur að ljúka ÍSLE2HS05, ENSK2LS05, STÆF2RH05 og SKYN2EÁ01 til að uppfylla kröfu brautarinnar. Almennar greinar, þurfa nemendur að taka í dagskóla, fjarnámi eða hjá símenntunarmiðstöðvum en æskilegt er að almennum greinum sé að mestu lokið.
Kennslufyrirkomulag / Námsframvinda
Miðað verður við kennslu faggreina þrjá daga í viku mánudaga til miðvikudaga klukkan 17:00- 21:00. Almennar greinar, t.d. íslensku og stærðfræði, þurfa nemendur að taka í dagskóla, fjarnámi eða hjá símenntunarmiðstöðvum en æskilegt er að almennum greinum sé að mestu lokið.
Námið er fjórar annir í skóla. Til viðbótar við skólatímann kemur áskilinn samningur hjá meistara þar sem nemendur vinna að verkþáttum skv. rafrænni ferilbók
Til að ljúka námi í húsasmíði þarf að ljúka öllum hlutum náms, þ.m.t. vinnustaðanámi/starfsþjálfun sem staðfest er með lokum á rafrænni ferilbók. Eftir útskrift getur nemandinn þreytt sveinspróf.
Annarplan kvöldskóla í húsasmíði
| ANNARPLAN KVÖLDSKÓLA HÚSASMÍÐI | |||||
| 1.önn | 2.önn | 3.önn | 4.önn | ||
| GRUN1FF04 | GRUN2ÚF04 | TEIV2BT05 | ÁÆST3VG05 | ||
| TRÉS1AB01 | BURÐ3BK03 | TEIV2GH05 | LOVE3ÞR06 | ||
| TRÉS1SL06 | TIMB3VS10 | INNA2IK03 | MÓTA3US03 | ||
| TRÉS2NT04 | TSVÉ2FT02 | TRÉS2II10 | TEIV3ÞT05 | ||
| TRÉS2PH10 | EFRÆ1BV05 | FRVV1SR03 | TRÉS3SH03 | ||
| VIÐB3VE03 | |||||