Fara í efni

TIMB3VS10 - Timburhús 1

Í boði : Haust

Lýsing

Í áfanganum lærir nemandinn um smíði staðbyggðra timburhúsa með áherslu á undirstöður, burðarvirki, klæðningu, einangrun, uppsetningu glugga og hurða, auk almenns frágangs. Nemandinn lærir um útfærslu einstakra byggingarhluta, efnisval, staðsetningu á stoðum, bitum og sperrum ásamt öryggis- og gæðamálum. Áfanginn er að mestu leyti verklegur þar sem nemendinn fær þjálfun í almennum verkþáttum húsasmíða eins og meðferð áhalda og tækja, notkun smíðisfestinga og yfirborðsmeðferð. Áfanginn er á námsbraut í húsasmíði og lögð er áhersla á sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.

Einingar 10

Þekkingarviðmið

  • burðarvirki timburhúsa
  • einangrun og mikilvægi vandaðs frágangs á henni
  • ísetningu og frágangi glugga og hurða
  • tilgangi, uppsetningu og frágangi á utanhússklæðningum á veggi og þök
  • öryggismálum á byggingavinnustað

Leikniviðmið

  • nota og vinna með öryggisbúnað
  • velja verkfæri við hæfi og vinna með þau
  • smíða burðarvirki timburhúsa
  • vinna eftir teikningum
  • nota áhöld til mælinga og uppmerkinga
  • setja glugga og hurðir í veggi
  • klæða timburvirki

Hæfniviðmið

  • smíða timburhús eftir teikningum og verklýsingum
  • leysa af hendi fjölbreytt verkefni á byggingavinnustað
Getum við bætt efni síðunnar?