TEIV2GH05 - Teiknivinna trésmiða
Í boði
: Vor
Lýsing
Í áfanganum læir nemandinn grunnatriðin í lestri byggingauppdrátta, lærir muninn á aðal– og séruppdráttum, fær þjálfun í að vinna með mælikvarða og teikna verkstæðisunna byggingarhluta með áherslu á glugga, hurðir og innréttingar. Nemandinn lærir aðferðir við þrepadeilingu stiga ásamt því að gerð er grein fyrir hönnunarforsendum í byggingarreglugerð ásamt stöðlum og verklýsingum. Mikilvægt er að nemandinn tileinki sér sjálfstæð vinnubrögð við upplýsingaleit og gagnaúrvinnslu og hafi aðstöðu til að prenta út vinnuteikningar í fullri stærð. Áfanginn er ætlaður bæði húsa- og húsgagnasmiðum og byggist aðallega á verkefnavinnu.
Einingar 5
Þekkingarviðmið
- kröfum sem gerðar eru til glugga og hurða
- uppbyggingu glugga, hurða og innréttinga
- reglum og reikniaðferðum um stiga
- vinnuteikningum sem henta fyrir trésmíðaverkstæði
Leikniviðmið
- nota tölvur til teikninga
- útbúa sérmyndir, deili og snið
- vinna með mismunandi mælikvarða
- útbúa teikningar til prentunar og prenta út nothæfar vinnuteikningar
Hæfniviðmið
- skilja uppbyggingu vinnuteikninga
- teikna útlitsmyndir, sérmyndir, deili og snið í tölvu
- útbúa vinnuteikningar eftir öðrum teikningum og fyrirmælum
- vinna eftir teikningum á trésmíðaverkstæði