VÉLF4VD05E - Vélfræði 5
Undanfari : VÉLF4VD05D
Í boði
: Haust
Flokkur
: Dagskóli
Lýsing
Nemendur öðlast fræðilega sérþekkingu á straumfræðilegum þáttum vélfræðinnar, þ.e. í varmafræði og varmanýtni véla. Þeir öðlast þekkingu á vatnsafls- og gufuvirkjunum og þeim þáttum sem hafa áhrif á falltap í skurðum, göngum og pípum, verða færir um að lýsa orkuflæði og orkuframleiðslu í vatnsafls- og gufuaflsstöðvum. Nemendur gera útreikninga á aflgetu slíkra stöðva miðað við gefnar forsendur.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- þeim þáttum sem stjórna falltapi í skurðum, göngum og pípum.
- uppbyggingu og starfsemi vatnsafls- og gufuaflsstöðva.
- grunnuppbyggingu helstu túbínugerða, þ.e. túrbínuhjóls, sogrörs, túrbínuhúss, leiðiskóflna, leiðiskófluhringa, brotlinka, arma o.s.frv.•hvaða gerðir túrbína henti við ákveðin skilyrði.
- rennslismótstöðu í skurðum, göngum og pípum.
- þeim lögmálum og reglum sem gilda um fallvatns- og gufuaflsvirkjanir.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- nota h.s. línurit og framkvæma útreikninga á afli og nýtni eimtúrbínu.
- reikna út falltöp í skurðum, göngum og pípum.
- gera straumfræðilega og varmafræðilega útreikninga á vatns- og eimtúrbínum.
- gera útreikninga á afli og nýtni eimtúrbínu.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- átta sig á hvernig vélbúnaði í vatnsafls- og gufuaflsvirkjunum er stjórnað.
- leggja mat á hvaða gerðir túrbína henti við ákveðin skilyrði.
- vinna að mati á mögulegum virkjanakostum út frá gögnum um vatnsmagn og fallhæð og velja túrbínu á grundvelli þeirra niðurstaðna.
Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá.