Fara í efni

VÉLT3ÁL04 - Véltækni 1

Undanfari : VÉLS2KB05
Í boði : Vor

Lýsing

Megináhersla er lögð á nemandinn öðlist færni og þekkingu á vélbúnaði með verkefnavinnu og greiningu mældra niðurstaðna. Sérstök áhersla er á varmafræði, varmajöfnuð og fræðilegar rannsóknir á aflfærslu til framdriftar skipa. Nemandinn þjálfast í rekstri vélkerfa með því að gera varmafræðilegar athuganir og vinna úr þeim. Einnig er unnið að rannsóknum á varmaskiptum. Nemandinn á að nýta sér námsefni undanfara og áunna fagþekkingu til að vinna verklegar æfingar og tilraunir sem hafa það hlutverk að auka skilning á einstökum þáttum fræðigreinarinnar.

Einingar 4

Þekkingarviðmið

  • nýtni og afldreifingu miðflóttakraftsdælu
  • dælukennilínum, mótstöðukennilínum og stjórnun rúmtaksstreymis fyrir miðflóttaaflsdælu
  • rannsóknum á varmafræðilegum eiginleikum varmaskiptis
  • varmajöfnuði dísilvéla
  • álagslínuriti aðalvélar skips
  • skrúfulínuriti

Leikniviðmið

  • nota díagrammrannsóknir til að greina bilanir í dieselvélum
  • gera varmajöfnuð á dieselvél og leggja mat á niðurstöður
  • lesa úr niðurstöðum varmajöfnuðar og varmaskipta vélbúnaðar
  • setja niðurstöður mælinga og athugana fram í skýrsluformi
  • afla upplýsinga um ástand lofttemprunarkerfa og vinna úr þeim

Hæfniviðmið

  • taka ákvarðanir um viðbrögð ef niðurstöður mælinga á vélbúnaði gefa tilefni til
  • setja fram helstu atriði æfingarinnar og niðurstöður í skýrslu þar sem fram koma helstu mæliniðurstöður, útreikningar, línurit
  • draga ályktanir af niðurstöðum rannsóknaræfinga og gera tillögur að úrbótum
Getum við bætt efni síðunnar?