RASV3ST05 - Raflagnastaðall
Í boði
: Haust
Lýsing
Nemendur kynnist stöðlum og reglugerðum um raforkuvirki. Viti hvernig ákvæðum reglugerða er framfylgt og þekki öryggisreglur. Þekki helstu tengimáta kerfa, álagsvarnir, lekastraumsvarnir og frágang jarðbindinga. Nemendur þekki ÍST 200-2006 og geti nýtt hann til að sækja sér upplýsingar um reglur og frágang.
Einingar 5
Þekkingarviðmið
- slysahættu í vinnuumhverfi rafiðnaðarmanna og helstu öryggisráðstöfunum gegn henni
- raforkukerfi og rafbúnaði í íslenskum skipum
- almennum kröfum í byggingarreglugerð til raflagna og rafbúnaðar í mannvirkjum
- magni, gerð og staðsetningu á rafbúnaði í raflögnum fyrir íbúðarhúsnæði
- tengingum neysluveitna við lágspennudreifikerfi rafveitna
- fyrirkomulagi og frágangi á mælitækjum fyrir raforkunotkun
- reglugerð um rafmagnsöryggismál
- grundvallarreglum um raflagnir bygginga
- skilgreiningum íðorða um öryggi raflagna
- mismunandi gerðum dreifikerfa og almennum eiginleikum raflagna í byggingum
- helstu varnaraðgerðum gegn raflosti, hitaáraun, yfirstraum og spennutruflun
- vali og uppsetningu á raflögnum og búnaði þeirra
- sannprófun á öryggi raflagna í byggingum
- sérákvæðum vegna staðsetningar virkja
Leikniviðmið
- leita sér upplýsinga í staðli
- velja búnað fyrir neysluveitur
- teikna og leggja upp almenna lögn fyrir heimili og smærri fyrirtæki
Hæfniviðmið
- ráðleggja um efni og búnað skv. staðli
- tengja rafmagnstöflu skv. staðli
- leggja rafmagn við mismunandi aðstæður skv. staðli