VSMV1TN03 - Smáspennuvirki 1
Lýsing
Í þessum áfanga kynnast nemendur samsetningu einkatölvu og aðferðum við bilanagreiningu. Lögð er áhersla á virkni undirstöðueininga einkatölvu, s.s. örgjörva, rásasett, tengiraufar, minni, einstakar stýringar á móðurborði, hlutverk BIOS, diskastýringar, inn- og úttakstengi, netkort ásamt stillingum fyrir internetið. Helstu einingar staðarnets og víðnets eru kynntar. Tölva er sett saman frá grunni og gengið frá uppsetningu á algengu stýrikerfi og notendahugbúnaði. Tölvan er í lokin tengd á staðarnet skólans og stillt fyrir internetið. Áhersla er lögð á að nemendur fái innsýn í samvirkni helstu jaðartækja sem notuð eru með einkatölvum. Þá er fjallað um stöðurafmagn og meðferð rafíhluta. Í þessum áfanga kynnast nemendur tölvunetkerfum. Farið er í uppbyggingu og virkni heimilis netkerfa. Nauðsynlegir íhlutir skoðaðir og hvernig einfaldur netbúnaður vinnur saman.
Einingar 3
Þekkingarviðmið
- helstu byggingarhlutum tölvu og hlutverki þeirra
- helstu stýrikerfum
- algengum notendaforritum
- helstu einingum í einföldu netkerfi
Leikniviðmið
- setja saman tölvu úr byggingarhlutum sínum
- forsníða harðan disk
- setja upp stýrikerfi á tölvu
- setja upp einfalt netkerfi
Hæfniviðmið
- bera kennsl á helstu bilanaeinkenni í tölvu
- leggja mat á gildi hinna ýmsu hugtaka við mat á afkastagetu tölvu
- bera kennsl á helstu bilanaeinkenni í netkerfi
- leggja mat á afkastagetu í einföldu netkerfi