RAMV3RR05 - Rafmagnsfræði 5
Undanfari : RAMV3RM05
Í boði
: Haust
Lýsing
Í þessum áfanga er fjallað um framleiðslu á þrífasa spennu. Sýnt er hvernig sínuslaga spenna myndast í þrífasa rafölum og vektormyndir þeirra. Farið er yfir myndun hverfisegulsviðs og áhrif þess í rafvélum. Fjallað er um tengingar á þrífasa spennum og vélum og gerðar tengimyndir af þeim. Gerð er grein fyrir helstu þrífasa mælitækjum og tengingu þeirra og fjallað um áhrif bilana á rekstur þrífasa kerfa. Leyst eru einföld verkefni er varða rekstur þrífasa spenna, tækja og véla. Þá er farið í þrífasa rafmótora, rafala, spenna, rafvélar, og tæki.
Einingar 5
Þekkingarviðmið
- myndun þrífasa hverfisegulsviðs
- tengingum þrífasa spenna, tækja og véla
- töpum í þrífasa búnaði
- fasviki í þrífasa búnaði og leiðréttingu á því
- virknimyndum þrífasa búnaðar
- vektormyndum þrífasa búnaðar
Leikniviðmið
- teikna tengimyndir þrífasa spenna, tækja og vél
- teikna vektoramyndir þrífasa búnaðar
- reikna strauma, spennur, afl og fasvik í þrífasa búnaði
- reikna stærð á búnaði til að leiðrétta fasvik í þrífasa kerfum
Hæfniviðmið
- lesa leiðbeiningar og merkiskilti ýmisskonar þrífasa búnaðar
- tengja þrífasa búnað við veitukerfi eftir upplýsingum á merkiskilti viðkomandi tækis
- leiðbeina um val á búnaði og lögnum í viðkomandi veitukerfi