Fara í efni

RÖKV2LM03 - Rofar og loftstýringar

Í boði : Haust

Lýsing

Í áfanganum fer fram kynning á loftstýringum, helstu loftmeðhöndlunartækjum og virkni þeirra. Fjallað er um nokkrar gerðir af loftstýrieiningum, s.s. loka og strokka og helstu tákn og tengimyndir sem notaðar eru í loftstýringum. Nemendur þjálfast í teikningum og tengingum á einföldum loftstýringum. Haldið er áfram með segulliðastýringar þar sem frá var horfið í fyrri áfanga en nú með tengingum við loftstýringar. Nemandinn hannar og tengir loftstýribúnað sem stjórnað er af segulliðastýringum. Eins og í fyrri áfanga er áhersla lögð á að nemandinn nýti sér mælitæki til að finna tengivillur og bilanir og fái þjálfun í að tengja, prófa og mæla og taka saman niðurstöður.

Einingar 3

Þekkingarviðmið

  • helstu kostum og göllum við loftstýringar
  • virkni og notkun á loftpressum, loftsíum, smurtækjum, lofthylkjum og öryggislokum
  • virkni og notkun á einvirkum og tvívirkum strokk
  • virkni og notkun á 2/2-, 3/2- og 5/2-lokum sem stýrt er handvirkt, með rafmagni, með lofti og vélrænt
  • virkni og notkun á deyfistefnu-, tvíþrýsti- og einstefnulokum

Leikniviðmið

  • teikna virkni- og tengimyndir
  • tengja eftir teikningum
  • tengja segulliða- og loftstýringar saman

Hæfniviðmið

  • framkvæma bilanaleit í loftstýringum
  • skilja upplýsingar af skiltum rafmótora
Getum við bætt efni síðunnar?