Fara í efni

SMÍÐ1NH05 - Handavinna málmiðna 1

Notkun handverkfæra, vélavinna

Einingafjöldi: 5
Þrep: 1
Forkröfur: engar
Nemandinn fær almenna kynningu á umhverfi á málmsmíðaverkstæði ásamt helstu umgengnis- og öryggisreglum. Þá er farið yfir meðferð og notkun helstu mælitækja, handverkfæra og einföldustu tækja til smíða sem notuð eru í málmiðnaði. Unnið er að verkefnum þar sem nemandinn les vinnuteikningar, fær þjálfun í að mæla, merkja, saga, sverfa, bora, snitta, slípa, o.s.frv. Jafnframt lærir nemandinn að nota handbækur og töflur. Lögð er áhersla á að nemandinn kunni skil á vinnsluhætti rennibekkja, borvéla og fræsivéla og læri umhirðu véla og verkfæra sem hann vinnur með. Nemandinn öðlast nægilega færni til að leysa einföld verkefni í rennibekk innan 0,1 mm málvika. Farið er yfir grunnþætti í þunnplötusmíði, helstu verkfæri og vélar, þannig að nemandinn geti smíðað einfalda hluti. Samhliða kennslunni fer fram fræðsla um slysahættu og öryggisþætti á vinnustað, þar sem rík áhersla er lögð á umgengni við vélar og verkfæri sem unnið er með.

Þekkingarviðmið

  • meðferð og umhirðu verkfæra
  • mælitækjum og uppmerkitækjum
  • notkun slípibanda og smergelskífa
  • almennum öryggisreglum á vinnusvæði
  • mikilvægi þess að ganga þrifalega um vinnusvæði sitt
  • mikilvægi þess að ganga á réttan hátt frá spilliefnum, t.d. olíu og olíublautum pappír
  • mikilvægi góðrar loftræstingar
  • undirstöðuatriðum heilsuverndar
  • réttri notkun hlífðarfatnaðar og persónuhlífa

Leikniviðmið

  • smíða hluti úr mismunandi málmum
  • lesa af teikningum
  • beita mælitækjum og uppmerkitækjum
  • beita helstu hjálpartækjum, t.d. rissnál, vinkli, hæðarrissi og hringfara við uppmerkingu á efni fyrir vinnslu
  • beita réttri yfirborðsmeðhöndlun miðað við efnisgerð og notkun
  • velja sér skeráhöld til verka
  • draga bor og rennistál ef á þarf að halda
  • bora í málma af mismunandi gerðum og þykktum

Hæfnisviðmið

  • efna niður og málsetja einfalda hluti úr málmi
  • ákveða rétta vinnsluaðferð
  • velja réttar þjalir fyrir efni og áferð
  • velja bora eftir efnum sem bora skal og snúningshraða eftir borstærð og efnum
  • velja rétta borstærð í töflu eftir stærð snitttappa sem nota á
  • gera skrúfgang með snittverkfærum og nota snitttöflu i verklegum æfingum
  • skipuleggja vinnu sína á sjálfstæðan og agaðan hátt
Nánari upplýsingar á námskrá.is
Getum við bætt efni síðunnar?