Fara í efni

STÝV2SK05 - Segulliðastýringar 2

kraftrásir, segulliðastýringar, yfirálagsvarnir

Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Forkröfur: STÝV1RS03
Í áfanganum eru kynnt helstu stýrikerfi sem notuð eru í iðnstýringum, þ.e. segulliðastýringar, loftstýringar, rafeindastýringar og iðntölvustýringar og farið dýpra í segulliðastýringar, þ.e. kraft- og stýrirásir, heldur en gert var í fyrri áfanga. Farið er yfir virkni og notkun yfirálagsvarna, mótorvarrofa og varnarbúnaðar sem notaður er í kraft- og stýrirásum. Haldið er áfram með teikningar og staðla sem og kennslu teikniforrita fyrir segulliðastýringar (t.d. Acad og/eða PCschematic). Farið er yfir notkun tengilista og tengilistanúmera, strengja- og víramerkingar. Kynntar eru nokkrar ræsiaðferðir rafmótora, svo sem Y/D-ræsing, Dahlander-ræsing, bein ræsing og mjúkræsingar. Nemandinn fær þjálfun í að tengja, prófa og mæla og taka saman niðurstöður. Einnig er lögð áhersla á að nemandinn nýti sér mælitæki til að finna tengivillur og bilanir.

Þekkingarviðmið

  • helstu stýrikerfum sem notuð eru í iðnstýringum
  • notkun og virkni á yfirálagsvörnum fyrir rafmótora, mótorvarrofa og varnarbúnað sem notaður er í tengslum við kraft- og stýrirásir
  • notkun og virkni endastoppsrofa, flotrofa og neyðarstoppsrofa
  • notkun og virkni á þrýstiliðum og segullokum
  • notkun á tengilistum og tengilistanúmerum
  • notkun á merkingum, þ.e. víra- og strengjamerkingum

Leikniviðmið

  • nota nokkrar ræsiaðferðir fyrir rafmótora
  • nota teikniforrit fyrir stýrirása- og kraftrásateikningar

Hæfnisviðmið

  • framkvæma bilanaleit í segulliðastýringum
  • skilja upplýsingar af skiltum rafmótora tengja stýri- og kraftrásir skammhlaupsmótora
Nánari upplýsingar á námskrá.is
Getum við bætt efni síðunnar?