STAÞ3SR10(AV) - Starfsþjálfun 3
starfsþjálfun í rafvirkjun
			Einingafjöldi: 10
Þrep: 3
Forkröfur: Starfsþjálfun 2
	Þrep: 3
Forkröfur: Starfsþjálfun 2
		Nemandi öðlist þekkingu á vali á rafbúnaði og geti annast tengingar á lág og smáspennulögnum. Nemandi geti með mælitækjum fundið bilanir í raflögnum og gert við þær. Hann læri að framfylgja kröfum viðskiptavina og geti sýnt leikni í samskiptum við þá. Nemandi geti veitt viðskiptavinum nauðsynlega ráðgjöf um val og staðsetningu rafbúnaðar bæði lágspennu og smáspennu. Nemandi á að fá þjálfun í vinnu við viðgerðir og uppsetningu á mismunandi gerðum raflagna-, öryggis- og stýrikerfa.	
			Þekkingarviðmið
- öryggiskröfum og öryggis á vinnustað
 - vali á búnaði til nota í raflögnum
 - mikilvægi fagmannlegra vinnubragða og vandvirkni
 
Leikniviðmið
- meðhöndla og beita handverkfærum og mælitækjum sem þarf að nota við rafvirkjastörf
 - leggja og tengja raflagnir á fagmannlegan hátt
 - annast viðgerðir og bilanagreiningu lagna og búnaðar
 - lesa teikningar og áætla magntölur
 - leiðbeina viðskiptavinum með faglegum hætti
 - leita að bilunum í raflögnum og tækjum
 
Hæfnisviðmið
- velja búnað og töfluskápa í allar almennar lágspennu og smáspennuraflagnir.
 - geta gert sér grein fyrir heppilegri staðsetningu rafdreifiskápa að teknu tilliti til bestu lagnaleiða
 - annast bilanaleit og viðgerðir á raflögnum og raftækjun.
 - sjá um uppsetningu lagna og búnaðar eftir raflagnateikningum