Fara í efni

STAÞ3SR20 - Starfsþjálfun 4

starfsþjálfun í rafvirkjun

Einingafjöldi: 20
Þrep: 3
Forkröfur: Starfsþjálfun 3
Lögð er áhersla á að nemandi geti unnið sjálfstætt. Nemandi öðlist þekkingu á vali á rafbúnaði og geti annast tengingar á honum. Hann geti notað mælitæki og rökhugsun við bilanaleit á rafbúnaði, mótorum og stýringum og gert við þær. Nemandi geti veitt viðskiptavinum ráðgjöf um val og staðsetningu rafbúnaðar bæði lágspennu og smáspennu. Nemandi á geta unnið sjálfstætt við viðgerðir og uppsetningu á mismunandi gerðum raflagna-, öryggis- og stýrikerfa.

Þekkingarviðmið

  • sérákvæðum varðandi raflagnir í einstökum rýmum
  • notkun mælitækja við bilanaleit
  • tengingu tölvunetkerfa
  • mótorum og mótorstýringum
  • tengingu margskonar rafstýri- og loftstýrikerfa

Leikniviðmið

  • ganga tryggilega frá raflögnum í einstökum rýmum, miðað við aðstæður
  • vinna sjálfstætt á vinnustað og forgangsraða verkþáttum
  • efnistaka verk og vinna samkvæmt verkteikningu
  • leiðbeina viðskiptavinum um val og staðsetningu rafbúnaðar
  • annast viðgerðir og bilanagreiningu lagna og búnaðar
  • lesa teikningar og áætla magntölur
  • leiðbeina viðskiptavinum með faglegum hætti

Hæfnisviðmið

  • velja búnað og töfluskápa í allar almennar lágspennu og smáspennuraflagnir
  • geta staðsett rafdreifiskápa að teknu tilliti til bestu lagnaleiða
  • annast bilanaleit og viðgerðir á raflögnum og raftækjum
  • sjá um uppsetningu lagna og búnaðar eftir raflagnateikningum
Nánari upplýsingar á námskrá.is
Getum við bætt efni síðunnar?