Fara í efni

VÉLS3KS05 -

kraftar og sveiflumyndun, uppbygging og slitfletir véla

Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Nemandinn þjálfast í keyrslu vélarúms og vélbúnaðar. Með vélhermum kynnist nemandinn daglegum rekstri vélarúms, frá köldu skipi til fullrar aflnotkunar. Viðbrögð við bilunum þjálfuð. Nemandinn ræsir allan búnaði vélarrúmsins og rekur vélarrúmið með hjálp viðvörunarkerfa hermisins í tilgreindan tima. Nemandinn bregst við gangtruflunum, greinir bilanir og kemur búnaðinum í rétt horf. Nemandinn öðlast hagnýta verklega þjálfun við stjórn á brunavél ásamt viðeigandi stoðkerfum í vélarhermi. Nemendur annast allan daglegan rekstur vélarrúms frá stjórnstöð, sinna bilanagreiningu og nýta sér upplýsingar frá framleiðendum, afgasvaka og viðvörunarkerfi til að tryggja öruggan rekstur vélarúmsins.

Þekkingarviðmið

  • stjórntækjum vélarúmshermis
  • daglegum rekstri vélarúms og hjálparbúnaðar
  • virkni og uppbyggingu véla og vélbúnaðar, svo sem stýrisvéla, sjó- og ferkvatnsdæla, ferskvatnseimis og rafmagnsframleiðslu
  • hvernig véladagbók er færð og notuð
  • Skildum vakthafandi vélstjóra og hvernig örugg samskipti milli brúar og vélrúms fara fram

Leikniviðmið

  • ræsa og stöðva einstök tæki vélarrúmsins og stoðkerfa þess í vélarúmshermi á þann hátt að tækjum og búnaði verði ekki misboðið og að
  • forgangsraða á eðlilegan hátt vinnu í vélarúmi
  • tímasetja verk miðað við aðstæður
  • afla upplýsinga um ástand vélbúnaðar og stoðkerfa
  • vinna með öðrum stjórnendum að viðbrögðum og hættum sem upp geta komið varðandi búnað og öryggi skips

Hæfnisviðmið

  • standa vaktir í vélarúmi og bregðast við bilunum og áreiti varðandi búnað
  • taka ákvarðanir um stjórntök eða viðbrögð við óeðlilegu ástandi vélbúnaðar eða stoðkerfa og gert viðeigandi ráðstafanir
  • nota kerfismyndir og handbækur sem hjálparbúnað við bilanagreiningu og viðbrögð við bilunum
  • vinna sjálfstætt og taka frumkvæði sem vélstjóri
Nánari upplýsingar á námskrá.is
Getum við bætt efni síðunnar?