Fara í efni

SAGA1ÁH03 - Saga með áherslu á hörmungar og stríð í veröldinni

hörmungar og stríð frá 20. öld til dagsins í dag

Einingafjöldi: 3
Þrep: 1
Áfanginn miðar að því að nemendur fræðist um stórstyrjaldir og hörmungar samfara þeim á 20. öld til dagsins í dag og hvernig þær hafa haft áhrif á heimsbyggðina. Hvernig valdamiklar persónur hafa haft áhrif til góðs eða ills til dæmis hvað varðar lýðræði, mannréttindi og jafnrétti í heiminum.

Þekkingarviðmið

  • afleiðingum styrjalda og hörmunga á búsetuskilyrði á ákveðnum svæðum
  • áhrifum ýmissa atburða á lýðræði og mannréttindi á ákveðnum svæðum
  • áhrifum ýmissa atburða á jafnrétti og menntun á ákveðnum svæðum

Leikniviðmið

  • nýta sér bókasöfn og tækni í upplýsingaleit
  • tjáð skoðanir sínar, hlusta á og ígrunda skoðanir annarra
  • eiga jákvæð samskipti og samstarf við aðra
  • nýta sér fjölbreyttari orðaforða

Hæfnisviðmið

  • tileinkað sér jákvætt hugarfar og víðsýni
  • bera virðingu fyrir mismunandi lífsgildum, mannréttindum og jafnrétti
  • auka trú á eigin getu
Nánari upplýsingar á námskrá.is
Getum við bætt efni síðunnar?