Fara í efni

TRÉS2PH10 - Trésmíði 2

flokkun viðar, harðviður, plötuefni, öryggismál

Einingafjöldi: 10
Þrep: 2
Forkröfur: TRÉS1SL06
Í áfanganum er haldið áfram að fjalla um grunnatriði trésmíða með áherslu á þekkingu og færni í smíði úr plötuefni og harðviði. Nemandinn fæst við mismunandi samsetningar, límingar, pússningu, litun og yfirborðsmeðferð. Nemandinn lærir um lakk– og bæstegundir, að vinna með viðarspón og kantlímingar og ýmsar leiðir til samsetninga á hornum. Nemandinn lærir um plasthúðaðar plötur og lagningu harðplasts, ásamt eiginleikum, flokkun og þurrkun viðar. Nemandinn fær fræðslu um öryggismál á trésmíðaverkstæðum og þær hættur sem leynst geta á vinnusvæðinu. Nemandinn lærir hvernig ganga skuli um tæki og vélar og að nota nauðsynlegar persónu- og öryggishlífar. Áhersla er lögð á að vinna í áfanganum verði sem líkust vinnu á trésmíðaverkstæði. Áfanginn er bæði ætlaður húsa– og húsgagnasmiðum.

Þekkingarviðmið

  • vinnuumhverfi trésmiða
  • öryggismálum á trésmíðaverkstæðum
  • algengum tegundum smíðaviðar
  • algengustu plötutegundum
  • spónvinnslu og plastlagningu
  • algengustu trésmíðavélum
  • algengustu rafmagnshandverkfærum
  • helstu trésamsetningum
  • helstu samsetningaraðferðum á plötum
  • yfirborðsmeðferð á smíðaviði

Leikniviðmið

  • nota mismunandi smíðavið og efni
  • beita algengum handverkfærum og trésmíðavélum
  • nota áhöld til mælinga og uppmerkinga
  • brýna sporjárn og hefiltennur
  • beita lakksprautu til yfirborðsmeðferðar
  • nota persónuhlífar við verkstæðisvinnu
  • nota öryggishlífar á trésmíðavélum
  • beita spónskurðarverkfærum
  • framkvæma mismunandi spónsamsetningar
  • spón– og plastleggja plötuefni

Hæfnisviðmið

  • smíða eftir teikningum og verklýsingum
  • leysa af hendi fjölbreytt smíðaverkefni
  • vinna með helstu tæki og vélar sem notuð eru við störf á trésmíðaverkstæði
  • forðast þær hættur sem leynst geta á trésmíðaverkstæði
  • stilla öryggishlífar á trésmíðavélum á réttan hátt
  • starfa á trésmíðaverkstæði
Nánari upplýsingar á námskrá.is
Getum við bætt efni síðunnar?