Fara í efni

HÖTE3LV05 - Lokaverkefni

hugmyndavinnuferli, kynningarefni, lokaverkefni, sköpunarferli, sýningarhald

Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Forkröfur: Nemandinn þarf að hafa lokið öllum textíl- og myndlistaráföngum á sínu kjörsviði.
Í áfanganum útfærir og vinnur nemandinn verk eftir eigin hugmynd og velur viðfangsefni eftir eigin áhugasviði. Hann getur valið að dýpka skilning á námsgreinum sem hann hefur áður kynnst eða kynnt sér nýjar. Nemandinn skal skipuleggja heildarvinnuferlið, frá hugmynd að lokaverki sem hann sýnir í lok annar. Verkið skal uppfylla kröfur um hugmyndaauðgi, listræna framsetningu og góðan frágang. Nemandanum er frjálst að leita fanga eins víða og hann telur nauðsynlegt til að ná fram settum markmiðum.

Þekkingarviðmið

  • hvernig hugmynd er fylgt eftir frá því að hún fæðist og þangað til hún er sett upp á sýningu
  • sjálfstæðum vinnubrögðum við þróun hugmynda
  • samfélagslegu og menningarlegu gildi hönnunar sinnar

Leikniviðmið

  • auka færni sína í að vinna vandaða hugmyndavinnu í þeim efnivið sem hentar honum
  • skipuleggja verkferli með ábyrgum og sjálfstæðum hætti
  • beita sjálfstæðum vinnubrögðum við þróun hugmynda og útfærslu verka
  • sýna áræðni við útfærslu hugmynda og túlkun
  • miðla þekkingu sinni á fjölbreyttan hátt; munnlega, skriflega, verklega og/eða með nýmiðlum
  • endurmeta hugmyndir sínar og taka tillit til breytinga í framkvæmd
  • greina, tjá sig um og meta eigin verk og annarra af þekkingu, víðsýni og umburðarlyndi

Hæfnisviðmið

  • setja fram vinnuáætlun, fylgja henni og greina verkþætti
  • sýna frumkvæði og skapandi nálgun í listgrein sinni
  • taka þátt í og skipulegga lokasýningu með sameiginlegt markmiðs hópsins að leiðarljósi
Nánari upplýsingar á námskrá.is
Getum við bætt efni síðunnar?