Fara í efni

TNTV1TN03 - Tölvur og net 1

notendahugbúnaður, talnakerfi, uppsetning stýrikerfa

Einingafjöldi: 3
Þrep: 1
Forkröfur: engar
Í áfanganum kynnist nemandinn samsetningu einkatölvu. Farið er í byggingarhluta tölvu og hlutverk þeirra. Gengið er frá uppsetningu á stýrikerfi og notendahugbúnaði fyrir tölvu. Áfanginn er einnig kynning á stafrænni tækni og beitingu hennar við tæknileg úrvinnsluefni. Nemandinn kynnist rökhugtökum, mismunandi talnakerfum, Boole-framsetningu og teiknistöðlum. Reikniaðferðir rökrása eru kynntar og kóðar. Nemandinn lærir að nota sannleikstöflur og bólksar-jöfnur til að skilgreina virkni rökrása.

Þekkingarviðmið

  • helstu byggingarhlutum tölvu og hlutverkum þeirra
  • helstu stýrikerfum
  • helstu notendaforritum
  • helstu hugtökum stafrænnar tækni
  • talnakerfum sem notuð eru í stafrænni tækni
  • helstu reikniaðferðum rökrása
  • bólskum-jöfnum sem skilgreina virkni rökrása

Leikniviðmið

  • setja saman tölvu úr byggingarhlutum
  • forsníða harðan disk
  • setja upp stýriforrit
  • skilgreina virkni einfaldra rökrása
  • setja upp helstu stýrikerfi

Hæfnisviðmið

  • bera kennsl á helstu bilanaeinkenni í tölvu
  • leggja mat á gildi hinna ýmsu hugtaka við mat á afkastgetu tölvu
  • lesa virkni einfaldra rökrása
  • hanna rökrás út frá skilyrtri virkni
  • bilanagreina einfaldar rökrásir
Nánari upplýsingar á námskrá.is
Getum við bætt efni síðunnar?