LISA3ÍS05(AV) - Íslensk myndlistarsaga
íslensk myndlistarsaga frá landnámi til 20. aldar
			Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Forkröfur: LISA2RA05 eða sambærilegur áfangi
	Þrep: 3
Forkröfur: LISA2RA05 eða sambærilegur áfangi
		Í áfanganum er farið yfir helstu stílbrigði sjónlista á Íslandi frá landnámi og fram á 20. öld í samhengi við þróun evrópskrar listasögu og tengsl listarinnar við þjóðfélagslegar forsendur á hverjum tíma. Farið er í gegnum helstu stíleinkenni og stefnur í tengslum við tíðaranda hvers tímabils og tæknilegar, félagslegar og landfræðilegar forsendur íslenskrar listsköpunar fyrr og nú rannsakaðar. Áhersla er lögð á að nemandinn nýti sér fjölbreytta miðla við upplýsingaleit og framsetningu verkefna.	
			Þekkingarviðmið
- helstu stíleinkennum í íslenskri myndlistarsögu
 - verkum og hugmyndum helstu listamanna í íslenskri myndlistarsögu
 - gildi þekkingar á íslenskri listasögu í alþjóðlegu samhengi
 - hvernig samfélagsgerð, landfræðileg staða, veðurfar og tíðarandi hefur áhrif á hugmyndir, viðfangsefni og vinnuaðferðir myndlistarmanna
 
Leikniviðmið
- vinna á skapandi hátt í einstaklings- og hópverkefnum áfangans og sýna frumkvæði
 - taka þátt í samvinnu, upplýsingaöflun og samræðum í kennslustundum með sameiginlegt markmið hópsins að leiðarljósi
 - beita innsæi, tilfinningu og sjálfstæðum vinnubrögðum við útfærslu verkefna
 - beita faglegum hugtökum til að tjá sig um þekkingu sína á stíleinkennum, stílbrögðum og túlkunarleiðum í íslenskri listasögu
 
Hæfnisviðmið
- tjá sig um strauma og stefnur í íslenskri myndlistarsögu og miðla þekkingu sinni á skýran og gagnrýninn hátt
 - gera þekkingu sinni skil með margvíslegum hætti, skriflega, munnlega og með nýmiðlun
 - taka þátt í uppbyggilegri og frjórri samræðu um verkefni sín og annarra
 - ígrunda og rökstyðja mál sitt
 - beita faglegum hugtökum til að tjá sig um þekkingu sína á stíleinkennum, stílbrögðum og túlkunarleiðum í íslenskri listasögu