Fara í efni

RÖKV3HS05 - Rökrásir 5

hliðræn og stafræn merki, iðntölvur, reglun

Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Í áfanganum er fjallað um stærri iðntölvur og eiginleika þeirra. Einnig helstu gerðir íhluta iðntölvustýringa og forritun þeirra. Nemendur fá kennslu og þjálfun í forritun iðntölva og notkun forritunartækja og herma í PC-tölvum. Farið er í forritun með flæðimyndum (SFC), ladder og virkniblokkum (FBD). Farið er í uppsetningu reikniblokka hliðrænna stýringa með P reglun og PI og PID reglun kynnt fyrir nemendum .Þá fá nemendur æfingu í að tengja ytri búnað við iðntölvu s.s. skynjara (hliðræna og stafræna).

Þekkingarviðmið

  • helstu minnisgerðum iðntölva og eiginleikum þeirra, vinnsluhraða og vinnsluferli iðntölva
  • öllum helstu skipunum stafrænnar- og einfaldrar hliðænnar virkni
  • staðlinum EN61131 og notkun hans
  • staf- og hliðrænum skynjurum
  • skjalagerð er varða iðntölvustýringar
  • reglun og stillingu regla

Leikniviðmið

  • hanna og forrita ýmsa sjálfvirka ferla með iðntölvum
  • forrita iðntölvur í ladder, virkniblokkum og flæðimyndum
  • tengja skynjara og aflstýringar við iðntölvur

Hæfnisviðmið

  • skrifa flæðirit fyrir stýringar og forrita iðntölvu samkvæmt því
  • reikna út og vinna með hliðræna og stafræna ferla
  • setja upp, forrita og tengja iðntölvur við ytri búnað
  • velja forritanlegan stýribúnað fyrir rafmótora, hitatæki og ljósabúnað
Nánari upplýsingar á námskrá.is
Getum við bætt efni síðunnar?