Fara í efni

STAÞ4SB15 - Starfsþjálfun 4 bifvélavirkjun

starfsþjálfun í bifvélavirkjun

Einingafjöldi: 15
Þrep: 4
Forkröfur: STAÞ3SB25
Í þessum hluta starfsþjálfunar er lögð sérstök áhersla á skipulag og sjálfstæð vinnubrögð nemanda. Nemendur í starfsþjálfun eru sérstaklega þjálfaðir í samskiptum við viðskiptavini til að skilja óskir viðskiptavina og mikilvægi kurteisi, heiðarlegrar framgöngu og virðingar í samskiptum. Nemandinn á að vinna með sjálfstæðum hætti við fjölbreytta verkþætti á vinnustað og skal öðlast þjálfun, leikni og hæfni í að vinna við verkþættina. Lögð er áheyrsla á að nemandinn vinni við verkþætti þar sem að hann tekur sjálfsæðar ákvarðanir hvað varðar framvindu verks sem hann vinnur við og sjálfstæð þekking og hæfni endurspegli kunnáttu hans í verkþáttum sem unnið er við. Eftirfylgni með vinnu nemandans á tilgreindum verkþáttum á að vera með ferilbók sem meistari og nemandi fylla inn í eftir framvindu. Starfsþjálfun 4 er ávalt tekin eftir að skóla og annarri starfsþjálfun líkur.

Þekkingarviðmið

  • lögum og reglugerðum sem gilda um ökutæki hérlendis
  • verðmyndun verkþáttar í bifvélavirkjun
  • helstu reglum og venjum sem gilda í viðskiptum bíleiganda og bílaverkstæða

Leikniviðmið

  • nota nýjustu mælitæki framleiðanda við stillingu véla eða annara þátta í ökutækjum
  • fá upplýsingar frá framleiðendum og vinna skýrslur vegna viðgerða til framleiðenda

Hæfnisviðmið

  • gera skriflegar verklýsingar með kosnaðaráætlun fyrir verk á sínu fagsviði
  • kynna sér uppbyggingu kostnaðaráætlana framleiðenda ökutækja á hverjum tíma
  • meta ástand flóknari ökutækja og setja fram áætlun vegna viðgerðarþarfar
  • skipuleggja verkferla, setja upp verkþáttaröð og verkáætlun og vinna samkvæmt henni
Nánari upplýsingar á námskrá.is
Getum við bætt efni síðunnar?