Fara í efni

ÁÆST3VG05(AV) - Áætlanagerð og gæðastjórnun

gæðamál, verkáætlanir

Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Í áfanganum lærir nemandinn að nýta sér útreikninga, verkáætlanir og eyðublöð við gæðastjórnun á vinnustað. Nemandinn lærir að nýta töflureikni– og verkáætlanaforrit til að hafa yfirsýn yfir kostnaðarþætti verkefna, verkefnastýringu, gerð tímaáætlana og endurskoðun áætlana. Nemandinn lærir um notkun stjórnunar– og verkferla gæðatryggingar við verklegar framkvæmdir, ásamt sundurliðun verkefna og verkáætlanagerð. Áfanginn er sameiginlegur öllum bygginga– og mannvirkjagreinum og fer að mestu fram með raunhæfum verkefnum, þar sem m.a. er unnið með verðskrár einstakra iðngreina.

Þekkingarviðmið

  • verkefnastýringu og gæðastjórnun við byggingaferli
  • verðskrám iðngreina og gerð kostnaðaráætlana
  • uppbyggingu töflureikna og hagnýtingu þeirra
  • áætlanagerð og verkáætlanaforritum
  • tölvuforritum sem notuð eru til að gera verkáætlanir og hagnýtingu þeirra
  • helstu stjórnunar– og verkferlum
  • meðhöndlun og vistun nýrra teikninga og verklýsinga
  • móttöku efna á vinnusvæði
  • dagbókarhaldi og úttektum
  • meðhöndlun frábrigða/galla
  • innra eftirliti með einstökum verkþáttum verkefnis– og verkþáttarýni
  • gæðatryggingu samkvæmt reglugerðum um gæðakerfi við verklegar framkvæmdir

Leikniviðmið

  • magntaka og kostnaðarreikna einfalda þætti verklegra framkvæmda
  • gera verk– og tímaáætlanir
  • fylgja eftir gæðastjórnun á verkferlum
  • vinna eftir bygginga– og skipulagslögum nota töflureikni við útreikninga
  • nota verkáætlanaforrit við gerð tímaáætlana

Hæfnisviðmið

  • magntaka og kostnaðarreikna einfalda verkþætti á sjálfstæðan hátt
  • beita tíma– og hráefnaskráningu
  • vinna með tölvuforrit sem notuð eru til að gera verkáætlanir
  • beita og fylgja eftir innra eftirliti með einstökum verkþáttum
  • fara að lögum og reglugerðum um skipulags– og byggingarmál
Nánari upplýsingar á námskrá.is
Getum við bætt efni síðunnar?