Fara í efni

ÍSLE1VF04 - Íslenska með áherslu á velferð

læsi, velferð og bókmenntir

Einingafjöldi: 4
Þrep: 1
Forkröfur: engar
Unnið verður með alla þætti íslenskunnar og grunnþátturinn velferð hafður að leiðarljósi. Áhersla verður á velferð einstaklingsins í víðum skilningi og einnig verður samspil einstaklings, aðstæðna og umhverfis skoðað og rætt. Notast verður við aldursmiðaðar bókmenntir, íslenskar kvikmyndir og fjölbreytt verkefni. Megin áhersla verður á að nemandinn viðhaldi og byggi ofan á þann grunn sem hann býr nú þegar að.

Þekkingarviðmið

  • mikilvægi þess að nýta hæfileika sína
  • hugtakinu velferð
  • hvernig lýðheilsa sögupersóna birtist í bókmenntum
  • hugtökum sem tengjast lýðheilsu og velferð
  • samkennd
  • mikilvægi þess að taka þátt í umræðum og tjá eigin skoðanir

Leikniviðmið

  • vinna með öðrum
  • taka tillit til annarra
  • taka þátt í umræðum og tjá eigin skoðanir
  • sýna samkennd

Hæfnisviðmið

  • meta og greina lýðheilsu og velferð í textum eða upplýsingum
  • auka eigin hæfni og velferð
  • vera meðvitaður um styrkleika sína
  • spyrja spurninga og hlusta á sjónarmið annarra af víðsýni
  • tileinka sér jákvætt hugarfar
Nánari upplýsingar á námskrá.is
Getum við bætt efni síðunnar?