Fara í efni

HBFR1HL01(AV) - Heilbrigðisfræði með áherslu á heilbrigðan lífstíl

Heilbrigt líf

Einingafjöldi: 1
Þrep: 1
Lögð er áhersla á að nemandinn öðlist grunnþekkingu í heilbrigðisfræði með áherslu á hvað felst í heilbrigðum lífstíl. Fjallað verður um hugtakið heilbrigði og áhrif lifnaðarhátta á eigið heilsufar. Nemandinn fær fræðslu um nauðsyn hreinlætis, umhirðu um eigin líkama, mikilvægi hollustu og hvernig greina eigi á milli hollra og óhollra lífshátta.

Þekkingarviðmið

  • persónulegu hreinlæti og mikilvægi þess í daglegu lífi
  • áhrifum hreinlætis á líðan
  • hvað felst í því að taka ábyrgð á eigin hreinlæti og snyrtimennsku
  • áhrifum lifnaðarhátta á líðan
  • mikilvægi hollra lífshátta og hreyfingar

Leikniviðmið

  • fara eftir ráðleggingum í hollum lífsháttum, fæðuvali og hreyfingu
  • stunda ábyrga lífshætti
  • þekkja helstu þætti er varða persónulegt heilbrigði
  • þekkja og greina hollar lífsvenjur og næringu
  • þekkja eigin líkama og taka mark á skilaboðum frá honum
  • sinna eigin hreinlæti

Hæfnisviðmið

  • bera ábyrgð á eigin lífi
  • viðhafa persónulegt hreinlæti
  • viðhalda almennri vellíðan
  • viðhalda og bæta eigin heilsu
  • stunda heilbrigt líferni
Nánari upplýsingar á námskrá.is
Getum við bætt efni síðunnar?