Fara í efni

ÍSLE1VF04 - Íslenska með áherslu á lestur og bókmenntir

Læsi, velferð og bókmenntir.

Einingafjöldi: 4
Þrep: 1
Forkröfur: Nemendur þurfa að ráða yfir einhverri/nokkurri lestrargetu.
Unnið er markvisst að lestrarþjálfun af bókum. Nemendur lesa heilar bækur, skáldsögur eða sögur byggðar á sönnum atburðum. Þjálfunin miðast við að nemendur reyni að yfirstíga vanmátt sinn gagnvart lestri stærri verka. Öðlist trú á eigin getu, fræðist um rithöfunda og helstu bókmenntaheiti, auki orðaforða og bæti lesskilning.

Þekkingarviðmið

  • mismun skáldsagna og sagna byggðum á sönnum atburðum
  • uppbyggingu texta í skáldsögum og frásögnum
  • mikilvægi lestrar í daglegu lífi
  • að greina helstu bókmenntaheiti, s.s. söguþráð, tíma og persónur

Leikniviðmið

  • lesa sér til gagns í hljóði og leita svara við spurningum
  • lesa upphátt og tjá sig um innihald texta

Hæfnisviðmið

  • nýta sér bækur í daglegu lífi til gagns og gleði
  • spyrja spurninga og ígrunda mismunandi sjónarmið af víðsýni
  • láta skoðanir sínar í ljós og rökstyðja þær
  • eflast og auka sjálfstraust sitt
Nánari upplýsingar á námskrá.is
Getum við bætt efni síðunnar?