Fara í efni

ÍSLE1TL04 - Íslenska með áherslu á læsi í víðu samhengi

Læsi, ritun, tjáning

Einingafjöldi: 4
Þrep: 1
Forkröfur: engar
Áhersla er á lestur og læsi í víðu samhengi, s.s. hugtök, tákn, samskiptamiðla, umhverfi og fleira. Vinnuferlið miðast við að efla skilning, úrvinnslu og samskipta- og umhverfislæsi í þeim tilgangi að nemendur verði virkari og hæfari þátttakendur í samfélaginu. Notast verður við aldursmiðaðar bókmenntir, íslenska tónlist og fjölbreytt verkefni. Megináhersla verður á að nemandinn viðhaldi og byggi ofan á þann grunn sem hann býr nú þegar að.

Þekkingarviðmið

  • hugtakinu læsi í víðu samhengi
  • mikilvægi tjáningar og skynjunar
  • ýmsum aldurs- og áhugamiðuðum hugtökum
  • mismunandi tjáskiptaleiðum
  • mikilvægi lesturs og bókmennta

Leikniviðmið

  • nota upplýsingar á stafrænum miðlum
  • tjá sig með fjölbreyttum leiðum
  • vinna með texta sem hann hefur lesið og/eða hlustað á
  • taka þátt í umræðum
  • lesa upp og/eða tjá sig fyrir framan aðra
  • lesa og/eða hlusta á texta sér til gagns og gleði

Hæfnisviðmið

  • nýta sér læsi í víðu samhengi
  • hlusta á sjónarmið annarra af víðsýni
  • nýta sér upplýsingar sem koma fram t.d. í fjölmiðlum og netmiðlum
  • tjá eigin skoðanir
  • nýta sér ýmsa texta, s.s. bækur, fréttir, fræðigreinar og fl.
Nánari upplýsingar á námskrá.is
Getum við bætt efni síðunnar?