Fara í efni

STAÞ2SR20(AV) - Starfsþjálfun 1

starfsþjálfun í rafvirkjun

Einingafjöldi: 20
Þrep: 2
Forkröfur: Nemandi skal hafa lokið 2 önnum (60 einingum) í grunndeild rafiðna.
Nemanda eru kynntar öryggiskröfur á vinnustað og mikilvægt er að hann skilji mikilvægi þeirra. Honum skal gerð grein fyrir þeim hættum sem geta verið samfara vinnu við rafmagn. Nemandi skal læra meðhöndlun og beitingu handverkfæra sem nota þarf við rafvirkjastörf. Mikilvægt er vinnubrögð hans séu fagmannleg frá upphafi. Hann á að geta unnið sem aðstoðarmaður rafvirkja og geta framkvæmt einfalda verkþætti með leiðsögn. Nemandi skal með mælitækjum geta fundið út hvort lagnir séu spennu hafandi, til að forðast slys.

Þekkingarviðmið

  • öryggiskröfum og öryggi á vinnustað
  • mikilvægi fagmannlegra vinnubragða og vandvirkni

Leikniviðmið

  • meðhöndla og beita handverkfærum sem þarf að nota við rafvirkjastörf
  • leggja og tengja raflagnir á fagmannlegan hátt
  • vinna í hópi iðnaðarmanna að sameiginlegu markmiði

Hæfnisviðmið

  • vinna eftir fyrirmælum sem aðstoðarmaður rafvirkja við allar almennar raflagnir
Nánari upplýsingar á námskrá.is
Getum við bætt efni síðunnar?