VÉVI1VV02 - Skilningur á uppbyggingum véla, virkni hluta og bilanir
vélar og viðhald
			Einingafjöldi: 2
Þrep: 1
								
	Þrep: 1
		Í þessum áfanga fá nemendur að kynnast undirstöðuatriðum á sviði véla og viðhalds þeirra. Ýmsum undirstöðuatriðum og grundvallaratriðum er varða hin ýmsu kerfi margvíslegra véla. Nemendur taka í sundur og setja saman ýmsa hluti er tengjast vélinni með aðstoð kennara. Heimsóttir verða vinnustaðir þar sem nemendur fá að kynnast fjölbreyttri starfsemi málm og véltæknigreina. 	
			Þekkingarviðmið
- uppbyggingu véla og samsetningu vélahluta
 - mismunandi vélategundum
 - helstu viðhaldsmálum véla
 - mikilvægi vandvirkni
 - öryggismálum tengdum vélum og verkstæðum
 - meta og forðast mögulegar hættur í umhverfinu
 
Leikniviðmið
- taka helstu vélahluti í sundur og setja saman aftur
 - átta sig á algengum bilunum véla og hvað þarf til viðhalds
 - meta og forðast mögulegar hættur í umhverfinu
 - nota þann öryggisbúnað sem þarf til að forðast slys
 
Hæfnisviðmið
- skilja í hverju viðhald véla liggur
 - leggja mat á hættur í umhverfinu
 - nota persónuhlífar og öryggisbúnað sem til er ætlast