Prófareglur
Prófareglur
- Ef nemandi er veikur þegar lokapróf fer fram skal hann tilkynna það skrifstofu VMA
að morgni prófdags ella hefur hann fyrirgert rétti sínum til sjúkraprófs. Skráning í
sjúkrapróf fer fram á skrifstofu skólans um leið og veikindi eru tilkynnt með GÁT-
060 Skráning í sjúkrapróf. - Nemendum ber að leggja persónuskilríki með mynd á borð eða vinnustöð í upphafi
prófs. Ef nemandi hefur ekki persónuskilríki með sér er heimilt að leita til prófhafa til
staðfestingar um að nemandi sé skráður í áfanga. Ef ekki er hægt að staðfesta hver
nemandi er, skal prófstjóri ákvarða hvernig tekið er á málinu. - Próftími kemur fram á forsíðu prófs. Nemendur hafa heimild til að sitja 30 mínútum
lengur en próftími segir til um. - Nemendum ber að sitja hið minnsta 45 mínútur við verkefni sitt í hverju prófi. Komi
nemandi meira en 45 mínútum of seint til prófs, hefur hann glatað rétti sínum til að
þreyta prófið. - Öll meðferð snjalltækja er stranglega bönnuð á prófstað.
 - Ef vafi leikur á próftökurétti nemanda, t.d. vegna fjarvista eða hann hefur ekki lokið
tilskyldum verkefnum, skal nemandinn ganga úr skugga um rétt sinn hjá sviðsstjóra
sínum fyrir prófið. - Nemanda er ekki heimilt að fara án eftirlits úr prófstofu og koma aftur inn og ljúka við
að leysa prófið. - Meðferð matar og drykkjar er að öllu jöfnu óheimil í prófstofu.
 - Alger þögn skal ríkja í prófstofu. Ef nemandi þarfnast aðstoðar, skal hann rétta upp
hönd. Nemandi má ekki þiggja eða veita öðrum próftökum aðstoð meðan á prófi
stendur. - Einungis hjálpargögn sem tilgreind eru á forsíðu prófa eru leyfileg.
 - Nemanda er ekki heimilt að hefja próftöku fyrr en yfirsetukennari hefur gefið merki
um slíkt. - Grunað prófsvindl er tilkynnt til prófstjóra sem metur alvarleika hvers tilviks og hver
viðbrögð skulu vera. Prófsvindl þýðir að jafnaði fall í áfanga eða brottrekstur úr skóla.