Fara í efni

GÆST2VÞ04 - Gæðastjórnun fyrir verslunarþjóna

Gæðastjórnun fyrir verslunarþjóna

Einingafjöldi: 4
Þrep: 2
Í áfanganum er fyrst og fremst fjallað um almenna gæðastjórnun með áherslu á matvæli, HACCP og nýja matvælalöggjöf nr. 852 og að hluta 853 eftir því sem við á.

Þekkingarviðmið

  • mikilvægi þess að halda skráningu á hitastigi og þrifnaði almennt og þekki þær afleiðingum sem mögulega geta hlotist af því ef eftirliti er ekki sinnt og hitastig eða þrif standast ekki þær kröfur sem gerðar eru út frá hollustumarkmiðum
  • mikilvægi þess fyrir matvælafyrirtæki/verslanir út á við að gæðamál séu í lagi
  • hvernig innra eftirlit fer fram og geta aðstoðað ábyrgðaraðila við einföld atriði þar um

Leikniviðmið

  • starfa í samræmi við fyrirmæli og verklagsreglur um meðal annars móttökueftirlit, hættu á krossmengun og þrifaeftirlit í samræmi við skoðunarhandbók MAST.
  • aðstoða ábyrgðaraðila ytra eftirlits meðal annars með því að geta sýnt fram á verklagsreglur og niðurstöður þess eftirlits sem mögulega fylgir verklagsreglunum

Hæfnisviðmið

  • aðstoða ábyrgðaraðila við að uppfylla kröfur og reglur Matvælastofnunar og Heilbrigiseftirlits um hollustuhætti og örugga framleiðslu matvæla
  • geta unnið eftir einfaldri gæðahandbók miðað við það gæðastarf og gæðaeftirlit sem krafist er.
Nánari upplýsingar á námskrá.is
Getum við bætt efni síðunnar?