VIÐS3SS05(AV) - Frumkvöðlafræði
gerð viðskiptaáætlana, markaðsfræði, samvinna, sköpun
Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Forkröfur: Að hafa lokið 25 einingum á 2. þrepi
Þrep: 3
Forkröfur: Að hafa lokið 25 einingum á 2. þrepi
Í áfanganum er lögð áhersla á sköpun og virka þátttöku nemanda. Hann þekki aðferðir til að koma auga á viðskiptatækifæri og gert einfalda viðskiptaáætlun. Nemandinn stofnar, rekur og lokar fyrirtæki sem byggist á eigin viðskiptahugmynd og kynnist mikilvægi góðs undirbúnings og fjölbreyttra verkþátta við rekstur fyrirtækis. Farið verður í grunnatriði sem hafa verður í huga til þess að koma vöru eða viðskiptahugmynd á framfæri. Lögð er áhersla á hópavinnu og mikilvægi jákvæðra samskipta, að hver einstaklingur fái að njóta sín og finna hvernig hæfileikar hans nýtast best.
Þekkingarviðmið
- þróun viðskiptahugmyndar
- mikilvægi góðrar undirbúningsvinnu og skipulags
- ferlinu við að stofna og reka lítið fyrirtæki
- mikilvægi stjórnunar
- markmiðasetningu og hversu mikilvægt er að setja sér markmið
- einfaldri viðskiptaáætlun (markaðsmál, fjármál, starfsmannamál, skipulag)
- einfaldri markaðsáætlun, að koma vöru/þjónustu á framfæri
- mikilvægi ímyndar vöru og fyrirtækis
- samvinnu og mikilvægi jákvæðra samskipta
- félagslegri og samfélagslegri ábyrgð
Leikniviðmið
- miðla sínum skoðunum og hlusta á skoðanir annarra
- ræða viðfangsefni á málefnalegan hátt
- skipuleggja vinnu sína fram í tímann og setja sér markmið
- stunda sjálfstæð vinnubrögð endurtekning, kemur fram að neðan
Hæfnisviðmið
- gera markaðs- og viðskiptaáætlun
- koma vöru í framleiðslu og sölu
- sýna ábyrgð og frumkvæði við vinnu sína
- vinna með ólíku fólki
- stofna og reka lítið fyrirtæki
- tileinka sér víðsýni og faglega ígrundun í samvinnu
- hlusta óhlutdrægt á gagnrýni og ráðgjöf
- tileinka sér gagnrýna hugsun við frumkvöðlastarf og fyrirtækjarekstur