Fara í efni

SMÍÐ3RV05(AV) - Handavinna málmiðna 4

gæði, ryðfrítt stál, vinnuteikningar, öryggi

Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Forkröfur: SMÍÐ3SS05
Að áfanganum loknum geta nemendur beitt helstu vélum og verkfærum sem notuð eru við smíði úr ryðfríu efni. Þeir þekkja helstu efniseiginleika ryðfrís stáls og geta smíðað hluti úr því eftir nákvæmum teikningum. Ennfremur geta nemendur skipulagt vinnu sína m.t.t. krafna um gæði, öryggi og umhverfi. Að áfanganum loknum geta nemendur beitt helstu vélum og verkfærum sem notuð eru við smíði úr ryðfríu efni. Þeir þekkja helstu efniseiginleika ryðfrís stáls og geta smíðað hluti úr því eftir nákvæmum teikningum. Ennfremur geta nemendur skipulagt vinnu sína m.t.t. krafna um gæði, öryggi og umhverfi. Að áfanganum loknum eiga nemendur að geta smíðað eftir nákvæmum vinnuteikningum smíðagripi úr 1 –5mm plötujárni og prófílum og notað til þess algengustu vélar til plötuvinnu s.s. vals, beyguvél, plötu- og prófílklippur. Ennfremur geta þeir skipulagt vinnu sína m.t.t. krafna um hagkvæmni, gæði, öryggi og umhverfi.

Þekkingarviðmið

  • mismunandi efnisgerðum ryðfrís stáls og notkunarsviði þeirra
  • mismunandi gerðum ryðfrís stáls eftir yfirborði og áferð
  • helstu vélum og verkfærum sem notuð eru við smíði úr ryðfríu stáli og notkunarsviði þeirra, s s.
  • klippum, beygjuvél og vals
  • grundvallaratriðum varðandi notkun á CNC–stýrðum vélum
  • áhrifum beyginga á stærð smíðisgripa úr ryðfríu stáli
  • hinum ýmsu yfirborðsmeðhöndlunum s.s. póleringu, glerblæstri og sýrubæsingu
  • tækjum og búnaði sem þarf til yfirborðsmeðhöndlunar
  • umgengnisreglum við ryðfrítt stál þannig að efnið hljóti ekki skaða af
  • plasmaskurðartækjum, uppbyggingu þeirra og notkunarmöguleikum við smíði úr ryðfríu stáli
  • hlífðarbúnaði sem við á þegar unnið er með vélum og verkfærum sem notuð eru við smíði úr ryðfríu stáli
  • öryggisreglum við yfirborðsmeðhöndlun og notkun hreinsiefna

Leikniviðmið

  • klippa með hand- og vélklippum 1 – 5 mm þykkar plötur með 0,5 mm nákvæmni
  • nota plasmaskurðartæki á öruggan hátt
  • mæla smíðahluti samkvæmt staðlinum ÍST EN ISO 13920
  • smíða eftir teikningum hluti úr ryðfríu stáli
  • beita helstu vélum og verkfærum sem notuð eru við smíði úr ryðfríu efni

Hæfnisviðmið

  • umgangast ryðfrítt stál þannig að efnið hljóti ekki skaða af
  • velja efni úr efnisrekka eftir gefnum forsendum um gerð og þykkt
  • velja beygjuklossa og stilla beygjuvélar m.t.t. efnisþykktar
  • stilla keflisvalsa með hliðsjón af efnisþykkt og útfært völsunarvinnu á plötum og prófílum
  • meta smíðahluti samkvæmt staðlinum ÍST EN ISO 13920
  • velja rétta lofttegund og verkfæri við skurð á ryðfríu stáli
  • skipuleggja vinnu sína m.t.t. krafna um hagkvæmni, gæði, öryggi og umhverfi
Nánari upplýsingar á námskrá.is
Getum við bætt efni síðunnar?