VIÐH3VV04(AV) - Viðhald vélbúnaðar skipa
viðhald og viðgerðir vélbúnaðar skipa
			Einingafjöldi: 4
Þrep: 3
Forkröfur: VÉLS2TK04
	Þrep: 3
Forkröfur: VÉLS2TK04
		Nemandinn öðlast þekkingu á undirstöðuatriðum í viðhaldi og viðgerð á brunahreyflum skipa og algengum vél- og drifbúnaði sem þeim tengist. Nemandinn tekur í sundur, skoðar og setur saman vélar og vélbúnað.	
			Þekkingarviðmið
- uppbyggingu véla og samsetningu vélahluta
 - aðferðum við að stilla saman vélar og vélbúnað
 - hlutverki og uppbyggingu forþjöppu og gangráðs
 - áhrifum hitabreytinga á þenslu vélahluta og hvernig brugðist er við þeim við hönnun vélbúnaðar
 - aðferðum og efnum sem notuð eru til að steypa undir vélar og tæki
 
Leikniviðmið
- meta ástand vélbúnaðar samkvæmt þjónustu- og viðhaldslýsingum framleiðenda
 - mæla og skoða búnað með tilliti til slits og leggja mat niðurstöður
 - taka upp strokk og bullu meðalhraðgengrar dieselvélar og meta slit
 - sveigjumæla sveifarás og leggja mat á slit í sveifar- og höfuðlegum dieselvéla
 
Hæfnisviðmið
- vinna að upptektum á vélum og vélbúnaði
 - mæla upp skipsskrúfu og leggja mat á niðurstöður
 - leggja mat á dælur og dælikerfi sem þjónusta aflvélar með tilliti til viðhalds og upptektar
 - sinna umhirðu tannhjóla og vökvagíra
 - rétta af (lína saman) vél og drifbúnað
 - meta ástand brunahreyfla útfrá niðurstöðum athugana, svo sem þjöppumælingu og mælingu á smurolíuþrýstingi