HEIL1ST04(AV) - Heilsuefling 1 á starfsbraut
Almenn heilsuefling, verk- og bóklegt nám
			Einingafjöldi: 4
Þrep: 1
Forkröfur: engar
	Þrep: 1
Forkröfur: engar
		Í áfanganum verður fléttuð saman fræðsla og hreyfing og leitast við að hvetja nemandann til heilbrigðari lífshátta. Lögð verður áhersla á fjölbreytta líkamsþjálfun, mikilvægi næringar, áhrif umhverfis og menningar á heilsu, hreinlæti, kynheilbrigði og fleira sem tengist því að auka heilsulæsi einstaklingsins og ábyrgð hans á eigin heilsu. Unnið er markvisst að því að nemandi finni hreyfingu við sitt hæfi út frá getu og áhuga og öðlist færni í að skipuleggja eigin þjálfun auk þess sem farið er í grunnatriði réttrar líkamsbeitingar. Nemandi fræðist um hollt mataræði, skoðar eigið mataræði og mögulegar leiðir til að bæta það. Þá eru sköpuð tækifæri til að spreyta sig á fjölbreyttum aðferðum til þol-, styrktar- og liðleikaþjálfunar auk þess sem boðið verður upp á mælingar, t.d. á þoli og styrk, blóðþrýstingi og púlsi. 
	
			Þekkingarviðmið
- þeim þáttum sem hafa áhrif á heilsu okkar
 - mikilvægi andlegrar, félagslegrar og líkamlegrar vellíðunar
 - hvernig nemandi getur haft áhrif á þá þætti sem stjórna eigin vellíðan
 - mikilvægi þess að byggja upp virðingu fyrir sjálfum sér og öðrum með því að rækta líkama sinn og sál
 - áhrifum umhverfis og menningar á hugmyndir fólks um heilsu og heilbrigði
 - mikilvægi upphitunar, úthalds- styrktar- og liðleikaþjálfunar
 - leiðum til að nýta líkams- og heilsurækt í daglegum athöfnum
 - æfingum sem bæta líkamsstöðu
 - fjölbreyttum aðferðum til heilsuræktar
 - hvaða áhrif hollt, fjölbreytt og reglulegt mataræði hefur á líkamann
 
Leikniviðmið
- auka úthald sitt, styrk og liðleika með fjölbreyttum aðferðum sem henta hverjum og einum
 - stunda æfingar og hreyfingu sem stuðlar að bættri líkamsbeitingu
 - stunda þjálfun og hreyfingu sem hefur áhrif á jákvæða upplifun og viðhorf til líkams- og heilsuræktar
 - nota samvinnu til að stuðla að tillitssemi og hvatningu
 - temja sér hollt og gott mataræði
 - beita líkamanum rétt
 - nota heilsulæsi til að efla og viðhalda góðri andlegri og líkamlegri heilsu
 
Hæfnisviðmið
- styrkja jákvæða sjálfsmynd með þátttöku í almennri heilsurækt, leikjum og útiveru
 - skilja gildi samvinnu í leik og keppni
 - nýta upplýsingar á netinu er varða heilsusamlegan lífsstíl, jákvæða sjálfsmynd og geðheilbrigði
 - sýna öðrum virðingu við leik, nám og störf
 - glíma við fjölbreytt verkefni sem snúa að alhliða hreyfingu, líkams- og heilsurækt
 - nýta nánasta umhverfi sitt og náttúru til heilsuræktar
 - tileinka sér hollar og fjölbreyttar fæðuvenjur
 - nýta sér undirstöðuatriði líkamsbeitingar í þjálfun