Fara í efni

HEFR1HO02 - Heimilisfræði með áherslu á hollustu og velferð

Hollusta og velferð

Einingafjöldi: 2
Þrep: 1
Í áfanganum er sérstaklega litið á heilbrigði og velferð, sjálfbærni og skapandi starf. Áhersla er lögð á hollustu, fjölbreytt fæðuval, samsetningu fæðutegunda, fæðuhringinn, nýtingu, sparnað, endurvinnslu og velferð nemenda í daglegu lífi. Nemendur leysa verkefnin á sjálfstæðan hátt en einnig í samvinnu við aðra. Að auki munu verkefnin tengjast hollustu, hagkvæmni og hagnýtingu.

Þekkingarviðmið

  • að lesa úr mismunandi uppskriftum
  • mikilvægi hollrar næringar og á fjölbreyttu fæðuvali
  • mikilvægi sjálfbærni í daglegu lífi
  • fæðuhringnum og samsetningu fæðunnar
  • sjálfstæðum vinnubrögðum, samvinnu og verkaskiptingu
  • hreinlæti og frágangi við matargerð, sparnaði og sóun

Leikniviðmið

  • taka til viðeigandi hráefni
  • lesa utan á umbúðir, sjá hvaða hráefni er í vörunni og úr hvaða fæðuflokkum
  • viðhafa viðeigandi hreinlæti við matargerð
  • skoða eigin neysluvenjur
  • flokka umbúðir og afganga á réttan hátt
  • nota viðeigandi búnað og hlífðarfatnað við eldhússtörf
  • breyta uppskriftum til að gera þær hollari og prófa þær
  • vinna sjálfstætt og í samvinnu við aðra nemendur

Hæfnisviðmið

  • lesa og nýta sér mismunandi uppskriftir og vinna eftir þeim
  • gera sér grein fyrir hvaðan hráefnið kemur, hvernig það er unnið og hvernig hægt er að nýta það á sem hagkvæman hátt með sjálfbærni í huga
  • verða meðvitaðir um hollustu þess sem þeir neyta og áhrif þess á líkamann
  • sýna hver öðrum virðingu, umburðarlyndi og vera fær um ýmis konar samvinnu
  • nýta eigin hæfileika og frumkvæði í að skapa úr mismunandi hráefni með viðeigandi áhöldum og heimilistækjum
  • skipuleggja flokkun og endurvinnslu á eigin heimili
Nánari upplýsingar á námskrá.is
Getum við bætt efni síðunnar?