Fara í efni

ÍÞRG3HB03 - Handbolti og blak

blak, handbolti

Einingafjöldi: 3
Þrep: 3
Áfanginn er bóklegur og verklegur með það að markmiði að nemandinn læri að kenna börnum og unglingum undirstöðuatriði í handbolta og blaki. Áhersla er á tæknikennslu og kennslu í leikfræði og reglum. Stefnt er að því að nemendur öðlist ákveðna grunnfærni í greininni og lögð er áhersla á mikilvægi þess að leikurinn sé kenndur á leikrænan og skemmtilegan hátt.

Þekkingarviðmið

  • leikreglum í handbolta og blaki
  • hvernig á að leiðbeina börnum í handbolta og blaki
  • kennslu tækniæfinga í handbolta og blaki
  • skipulagningu handboltaþjálfunar og blakþjálfunar
  • fjölbreyttum leik- og tækniæfingum

Leikniviðmið

  • leiðbeina byrjendum í handbolta og blaki
  • nota handbolta og blak sem skólaíþrótt
  • spila handbolta og blak

Hæfnisviðmið

  • skipuleggja íþróttatíma í handbolta og blaki
  • stjórna hópi af börnum
  • átta sig á ólíkri getu einstaklinga í hóp
Nánari upplýsingar á námskrá.is
Getum við bætt efni síðunnar?